Tómas Valur skiptir um skóla í Bandaríkjunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 28. mars 2026 20:02 Tómas Valur Þrastarson spilar ekki Washington State Cougars á næsta vetri. Getty/Icon Sportswire Íslenski körfuboltamaðurinn Tómas Valur Þrastarson fer inn í hinn fræga félagskiptaglugga sem svo margir leikmenn í bandaríska háskólakörfuboltanum láta reyna á.
Tómas sló ungur í gegn með Þór úr Þorlákshöfn áður en hann ákvað að hefja nám í Bandaríkjunum. Tómas Valur hefur spilað í tvö tímabil með Washington State University og í vetur var hann með 8,8 stig, 4,1 frákast og 1,1 stoðsendingu að meðaltali á 22,9 mínútum í leik og hækkaði sig frá því á fyrsta tímabilinu. Það verður hins vegar ekkert þriðja tímabil í skólanum því Tómas Valur kvaddi skólann á samfélagsmiðlum. „Fyrst vil ég þakka Washington State University fyrir að gefa strák frá Íslandi tækifæri. Síðustu tvö ár í Pullman hafa verið ótrúlegur kafli í lífi mínu og ég hef þroskast svo miklu meira en ég átti von á,“ skrifaði Tómas. „Til þjálfara minna, liðsfélaga og alls stuðningsteymisins: Takk fyrir að hvetja mig áfram á hverjum degi og fyrir þá ævilöngu vináttu sem við höfum myndað. Þið gerðuð flutninginn til Bandaríkjanna óaðfinnanlegan. Til stuðningsfólksins og samfélagsins í Pullman: Orka ykkar og stuðningur létu Beasley líða eins og heima frá fyrsta degi,“ skrifaði Tómas. „Eftir mikla íhugun og umræður við fjölskyldu mína hef ég ákveðið að fara í félagaskiptagluggann með tvö ár eftir af leikheimild minni í háskólaboltanum. Ég er spenntur að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér en ég mun alltaf vera þakklátur fyrir tíma minn í 509,“ skrifaði Tómas.
Bandaríski háskólakörfuboltinn Mest lesið Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Enski boltinn Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Íslenski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti Fleiri fréttir Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Íslensku stelpurnar unnu Dani og eru einum sigri frá A-deild Íslenska liðið enn ósigrað Don Nelson látinn Fullkomin byrjun íslensku drengjanna heldur áfram Tryggði bæði framlengingu og skoraði sigurkörfuna Strákarnir byrja Evrópukeppnina á tveimur sigurleikjum Ísrael í undanúrslit á kostnað Íslands Sjöfaldur NBA meistari kennir íslenskum krökkum að setja stóru skotin Njarðvík semur við Sadio Doucouré Berglind með 33 stig í fyrsta leik og strákarnir unnu Úkraínu Hilmir greiddi sjálfur fyrir félagaskiptin með launalækkun Sótti silfur á EM eftir rúmt ár af meiðslum Ármenningar semja við fyrrum Íslandsmeistara Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Stelpurnar rúlluðu yfir Hollendinga Rebekka með 31 stig í góðum sigri á Portúgal NBA-stjarna skuldar Cam Newton 32 milljónir vegna vangreiddrar leigu Náðu ekki að halda í við heimaliðið í fyrsta leik EM Strákarnir spila um fimmtánda sætið Misstu Svisslendingana frá sér á hræðilegum lokamínútum Sjá meira