Breytingar á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar auglýstar Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 29. mars 2026 08:59 Svona mun Suðurlandsbrautin líta út. Umhverfis- og skipulagsráð hefur samþykkt að senda deiliskipulag Suðurlandsbrautar vegna Borgarlínunnar til auglýsingar í samráðsgátt. Minnihluti borgarstjórnar gagnrýnir fyrirhugaðar breytingar og sér í lagi að ekki sé búið að útfæra breytingar á bílastæðum við götuna.
Tvær tillögur umhverfis- og skipulagssviðs voru teknar fyrir af Reykjavíkurborg á fundi ráðsins í vikunni. Annars vegar var breyting á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 18 til 28 og Ármúla 15 til 27 og hins vegar breyting á deiliskipulagi Suðurlandsbrautar 30 til 34 og Ármúla 29 til 31, betur þekktur sem Orkureiturinn. Markmið breytinganna er að samræma borgarskipulagið við nýtt deiliskipulag Borgarlínu. Skipulagsmörkin eru færð en nákvæm útfærsla bílastæða við götuna er ekki sýnd á deiliskipulagsuppdráttum heldur verður hún ákveðin síðar. Um er að ræða heldur tæknileg atriði sem varða tilfærslu skipulagsmarka. Eftir að samþykkt var að auglýsa breytingarnar fer það nú í samráð og svo aftur til ráðsins þegar búið er að vinna úr samráðinu. Friðjón R. Friðjónsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu, bókaði á fundinum og sagðist leggjast gegn fyrirliggjandi tillögum um breytingarnar. „Þótt breytingarnar séu settar fram sem tæknileg aðlögun að Borgarlínu liggur fyrir að þær fela í sér verulega skerðingu á bílastæðum á svæðinu. Með því að taka bílastæði út úr uppdráttum og færa ákvarðanir um fjölda þeirra á síðari stig er verið að draga úr gagnsæi og veikja forsendur fyrir raunhæfu mati á áhrifum skipulagsins,“ bókaði Friðjón. Aðalsteinn Haukur Sverrisson, fulltrúi Framsóknar í ráðinu, bókaði einnig og sagði það alvarlegt að ekki hafi verið tekið tillit til athugasemda rekstraraðila við Suðurlandsbraut. „Suðurlandsbraut gegnir því lykilhlutverki í dag að dreifa umferð inn í Laugardal og tengja umferð sem er á leið í og úr miðbænum og mun þessi breyting koma til með að valda aukinni töf á umferð sem mun hafa ruðningsáhrif á samgöngukerfið í heild með neikvæðri þróun,“ bókar Aðalsteinn. Einbreiðar götur og brautarpallar Helstu breytingar sem leggur til að ráðast í eru að bætt verður við Borgarlínubrautum milli Skeiðarvogar og Lágmúla ásamt þremur stoppistöðvum við Glæsibæ, Laugardalshöll og Lágmúla. Hjóla- og göngustígum verður bætt við sunnan Borgarlínubrauta en núverandi stígar norðanmegin haldast óbreyttir. Nú þegar er búið að auglýsa stærri breytingarnar og mun umhverfis- og skipulagsráðið taka þær aftur fyrir á næstu vikum. Sjá nánar: Svona mun Suðurlandsbraut líta út Akgreinar fyrir almenna bílaumferð verða að mestu leyti einbreiðar, nema við stærri gatnamót þar sem geta verið viðbótarakreinar vegna beygjustrauma. Græn ásýnd gatna verður aukin með skilgreindum svæðum fyrir gróður. Suðurlandsbraut fyrir og eftir. Hreyfið til stikuna til að sjá muninn. Að lokum verður aðkomu bíla og bílastæða við Suðurlandsbraut 4 til 32 breytt. Hefðbundnar stöðvar verða með tuttugu metra langa brautarpalla en stöðin við Laugardalshöll og væntanlega þjóðarhöll verður með lengri brautarpalli, um 40 metra löngum, til að gera ráð fyrir auknum afköstum fyrir stóra viðburði í Laugardalnum. Við allar stöðvar verður gert ráð fyrir að koma megi fyrir hjólastæðum.
Reykjavík Borgarlína Borgarstjórn Skipulag Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira