Ársæll hættur sem skólameistari Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 29. mars 2026 13:12 Ársæll Guðmundsson hefur lokið störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla. Vísir/Samúel Karl Ársæll Guðmundsson hefur lokið störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla en skipunartími hans rennur út í júní. Hann hefur ekki ákveðið hvað hann hyggst gera í framhaldinu en segist stoltur af ferlinum.
Í lok síðasta árs var Ársæli tjáð af Guðmundi Inga Kristinssyni, þáverandi menntamálaráðherra, að staða hans yrði auglýst laus til umsóknar en skipunartími Ársæls rennur út í júní. Málið vakti hneyksli og margir töldu það lykta af skómálinu svokallaða en ráðherra sagði ákvörðunina hluta af fyrirhuguðum breytingum á stjórnsýslu framhaldsskóla á Íslandi. Ársæll segir um sameiginlega ákvörðun hans og mannauðsstjóra í menntamálaráðuneytinu að ræða. Í febrúar var greint frá því að Ársæll væri kominn í veikindaleyfi en hygði á að hefja aftur störf 1. apríl. Hann segir tillöguna um að hann lyki störfum núna hafa komið úr ráðuneytinu. Hann fundaði með starfsfólki skólans á föstudag og greindi því frá tíðindunum en Rúv greindi fyrst frá starfslokunum. Hvernig er tilfinningin? „Það er ömurlegt að yfirgefa vinnustað sem maður er búinn að byggja upp í tíu ár og yndislegt samstarfsfólk, flotta nemendur og flottan skóla. En núna er ráðuneytið búið að gefa út að það er ekkert út á mín störf að setja. Það var náttúrulega stórfurðulegt að vera settur bara til hliðar og bara út í kuldann og án nokkurra samskipta, hvorki við núverandi ráðherra né Guðmund Inga.“ Yfirgripsmikil reynsla Borgarholtsskóli er fjórði framhaldsskólinn sem Ársæll gegnir skólameistaraembætti í. Hann hefur leitt stýrihópa, unnið í menntamálaráðuneytinu, setið í nefndum og eftirlitshópum auk þess sem hann kom að stofnun Menntaskóla Borgarfjarðar. Ársæll hefur ekki ákveðið hvað hann hyggst taka sér fyrir hendur í framhaldinu. „Ég hef marga fjöruna sopið í þessum efnum. Þannig að það leggst örugglega eitthvað til, þó að núverandi ráðherra kæri sig ekkert um mína löngu reynslu og þekkingu í skólamálum,“ segir Ársæll sem lítur sáttur um öxl og kveðst stoltur af sínum störfum. Er eitthvað sem þú sérð eftir eða hefðir viljað gera öðruvísi? „Ég hefði alltaf getað verið betri og mannlegri við samferðafólk mitt. Það er það sem skiptir höfuðmáli og maður hefði alltaf, litið til baka, getað gert hlutina á mannlegri hátt. Þetta snýst jú allt um hið mannlega samfélag. Hún skiptir öllu máli, mennskan. Mér finnst hún vera að drena svolítið út núna hjá þeim sem eru við völd og mér finnst það mjög dapurlegt. Það er eins og Donald Trump sé alls staðar.“
Mál skólameistara Borgarholtsskóla Skóla- og menntamál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Framhaldsskólar Reykjavík Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Á annað hundrað sektaðir Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Þrjátíu grindhvalir við Hólmavík Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sjá meira