„Þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 30. mars 2026 23:28 Þórbergur Þórðarson endar í ruslinu en Henry segir það eðlilegt að fólk búi til pláss fyrir nýjar bækur. Vísir/lýður valberg Hundruðum þúsunda bóka er fargað hér á landi á ári hverju. Varaformaður Hagþenkis segir það þó ekki endilega slæmt að bækur endi í ruslinu enda mikilvægt að fólk rýmki til fyrir nýjum bókum. Öflug bókasala forsenda nýsköpunar í bókmenntum hér á landi.
Hallgrímur Helgason rithöfundur birti þessa hvimleiðu mynd á Facebook í gær af meistaraverkum stórskálda á borð við Þórberg Þórðarson og Halldór Laxness í ruslinu. Færslan vakti mikla athygli enda sárnaði ýmsum að sjá svona komið fyrir menningararfi þjóðarinnar. Bókstafleg bókaflóð En bækur í endurvinnslugámum er engin nýlunda. Um 500 þúsund bækur berast til Góða hirðisins úr nytjagámum Sorpu á ári hverju og í spilaranum má sjá aðeins brotabrot af þeim bókum sem fara þar í gegn á hverri viku. Einnig má sjá bækur sem ekki tókst að selja og eru á leiðinni beint í förgun. Þá eru ótaldar þær bækur sem fara beint í ruslið. Mörg þúsund bækur fara beint í ruslið og fá því ekki tækifæri til að ganga í endurnýjun lífdaga. 170 þúsund bækur seljast hjá Góða hirðinum og því fara um 350 þúsund bækur þaðan í förgun á ári hverju. Bækur flæddu úr gámi sem var á leiðinni í förgun þegar Gunnar Dofri Ólafsson, sviðsstjóri samskipta- og þjónustusviðs Sorpu, opnaði hann fyrir fréttamanni. Hér er bara bókaflóð? „Það er bókstaflega bókaflóð. Því miður. Þetta endar allt hérna hjá okkur. Þetta hefur komið hingað og ekki selst. Það kemur hálf milljón af bókum.“ Engin siðferðisleg skylda tengd bókum Henry Alexander Henryson, heimspekingur og varaformaður Hagþenkis félags höfunda fræðirita og kennslugagna, segir förgun bóka langt frá því að vera alvarlegasta vandamál íslenskra bókmennta. „Auðvitað getur okkur sárnað að sjá bækur sem okkur þykir vænt um enda í ruslinu. Ég held að meginviðfangsefni íslenskrar bókaútgáfu í dag sé ekki að bækur endi í ruslinu eða að fólk þurfi að losa sig við þær, heldur er það hvernig við getum haldið áfram hérna með öfluga bókaútgáfu í þessu landi. Ég vil gjarnan að fólk sjái ekki bækur þannig að þær komi með siðferðislegri skyldu að það megi ekki losa sig við þær í framtíðinni.“ Of skilvirkt hringrásarhagkerfi sé ekki endilega af hinu góða fyrir bókasölu. Gott og gilt sé að fólk rýmki fyrir nýjum bókum. „Við þurfum að selja bækur til að þetta kerfi standi undir sér. Það þarf öfluga sölu og ef fólk er alltaf endalaust að skipast á bókum þá er ekki mikil sala í gangi og þá er ég hræddur um að þetta kerfi falli um sjálft sig.“ Þótt að það sé vissulega sorglegt að sjá meistaraverk í ruslinu þá má ekki gleyma að þau má oftast finna á bókasöfnum víða um land líkt og fréttamaður komst að þegar hann fann bók Þórbergs á Borgarbókasafninu í Grófinni.
Bókmenntir Sorpa Halldór Laxness Reykjavík Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent „Aulalegasti bófinn í bænum“ Innlent Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Erlent Enn öðru flugi aflýst Innlent Fleiri fréttir „Ekki í lífshættu“ Flugáætlun Icelandair hafi fallið á álagsprófi Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ „Hvað hafa þau að fela?“ Enn öðru flugi aflýst Lögregluaðgerð á Laugavegi Sprengisandur: Páll stýrir þéttpökkuðum þætti Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skjálftahrina úti af Reykjanesi Maðurinn er fundinn „Aulalegasti bófinn í bænum“ Hefja formlegar viðræður og senda væna pillu í leiðinni D og B endurnýja heitin í Fjarðabyggð Tómas tjáir sig um dóminn Á sýklalyfjum í 120 daga: „Þetta er enginn brandari“ Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Sérsveitarmenn flugu til Ísafjarðar vegna vopnaðs manns „Einhvers konar toppur á ísjakanum“ Tvö mál ráði úrslitum Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Almennur borgari veitti bílnum eftirför Óttast um framtíð dóttur sinnar þegar þau geta ekki lengur hjálpað Flúðu eftir að hafa ekið á gangandi vegfaranda Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Sjá meira