Brostnir draumar Dana en Tékkar á HM í fyrsta sinn í tuttugu ár

Aron Guðmundsson skrifar
Denmark v Belarus - FIFA World Cup 2026 Qualifier
Dean Mouhtaropoulos/Getty Images

Tékkland tryggði sér sæti á HM í fyrsta sinn í tuttugu ár með sigri á Dönum í vítaspyrnukeppni í hreinum úrslitaleik um HM sæti í Prag í kvöld.

Heimamenn í tékkneska landsliðinu fengu draumabyrjun í leik kvöldsins þegar að Pavel Sulc kom þeim yfir með fyrsta marki leiksins strax á þriðju mínútu. Reyndist það eina mark fyrri hálfleiksins. 

Þegar komið var fram á 72.mínútu tókst Joachim Andersen hins vegar að jafna metin fyrir danska landsliðið með marki eftir stoðsendingu frá Mikkel Damsgaard. 1-1.

Fleiri mörk voru ekki skoruð í venjulegum leiktíma og því þurfti að framlengja. 

Ladislav Krejcí kom Tékkum aftur yfir í leiknum í fyrri hálfleik framlengingarinnar, 2-1 en um miðbik seinni hálfleiksins jafnaði Kasper Högh metin á nýjan leik fyrir Dani, 2-2. 

Fleiri mörk voru ekki skoruð í framlengingunni og því þurfti að grípa til vítaspyrnukeppni til að skera úr um hvort liðið færi á HM. 

Þar reyndust heimamenn í tékkneska landsliðinu sterkari og höfðu betur með þremur mörkum gegn einu. Danir klúðruðu þremur af fjórum vítaspyrnum sínum. HM draumur þeirra varð að engu en Tékkar eru á leið á HM.

Þetta er í fyrsta sinn í tuttugu ár sem Tékkland tryggir sér þátttökurétt á HM. Síðast var liðið með á mótinu árið 2006 í Þýskalandi. 

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira