HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta 2026

HM í fótbolta karla fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó dagana 11. júní til 19. júlí 2026.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Messi er ekki búinn að ná Mörtu

    Fjölmiðlar heimsins kepptust við að segja frá því að Lionel Messi hefði jafnað markamet heimsmeistaramótsins þegar hann skoraði sitt þriðja mark á móti Alsír. Það er samt ekki allur sannleikurinn því það er leikmaður sem hefur skorað fleiri mörk á HM en hann.

    Fótbolti

    Fréttir í tímaröð

    Fréttamynd

    UEFA lofar að hafa engin drykkjarhlé

    UEFA, knattspyrnusamband Evrópu, ætlar ekki að hafa vatnspásur í öllum leikjum á EM og í Meistaradeild Evrópu, líkt og tíðkast á HM í fótbolta í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Slökktu á sam­félags­miðlum og treysta á­fram á Ron­aldo

    Diogo Dalot segir að þó að milljónir Portúgala vilji að landsliðinu vegni sem best á HM í fótbolta þá séu til menn sem vilji ekki að liðið vinni. Hann segir álit liðsfélaganna á Cristiano Ronaldo ekkert hafa breyst en að það að spila í liði með Ronaldo þýði að menn þurfi að þola óeðlilega gagnrýni.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Sænska pressan tætir lands­liðið í sig

    Óhætt er að segja að andrúmsloftið í Svíþjóð sé þungt eftir 5-1 tap sænska landsliðsins gegn Hollandi á HM í fótbolta í gær. Á aðeins nokkrum dögum hefur stemningin í kringum liðið gjörbreyst. 

    Fótbolti
    Fréttamynd

    Slógu met Ís­lands og mark­vörðurinn jafnaði met á HM

    Curacao er núna orðin fámennasta þjóðin sem náð hefur í stig á HM, eftir markalaust jafntefli við Ekvador í E-riðli í nótt. Túnis er úr leik eftir að hafa aftur steinlegið, 4-0, þrátt fyrir að hafa ráðið nýjan þjálfara fyrir leik sinn við Japan.

    Fótbolti
    Fréttamynd

    FIFA breytti því hvernig stöðutöflur virka á HM

    Lítilsháttar breyting hefur verið gerð á því hvernig Alþjóðaknattspyrnusambandið, FIFA, raðar þjóðum upp í stöðutöflum á heimsmeistaramótinu í sumar og hún gæti haft gríðarleg áhrif á síðustu leiki riðlakeppninnar.

    Fótbolti