Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Agnar Már Másson skrifar 31. mars 2026 19:33 Dario Amodei er forstjóri Anthropic. Getty Starfsmenn tæknirisans Anthropic virðast óvart hafa lekið frumkóða risamállíkansins Claude Code. Lekinn ætti ekki að hafa nokkur áhrif á notendur en hann sviptir þó hulunni af tæknilausnum fyrirtækisins.
Tæknimiðillinn VentureBeat greinir frá þessu en Anthropic staðfestir þar að innri frumkóði forritunartólsins Claude Code, sem keyrir í útstöð (e. terminal), hafi óvart orðið aðgengilegur almenningi. „Engin viðkvæm gögn um viðskiptavini eða reikningsupplýsingar voru undir eða gerð opinber,“ skrifar Anthropic í yfirlýsingu til VentureBeat. „Um er að ræða útgáfu sem er af völdum mannlegra mistaka, en ekki öryggisbrests.“ Unnið sé að verkferlum til að koma í veg fyrir að þetta gerist ekki aftur. Nánar tiltekið var tæplega sextíu megabita map-skjali óvart hlaðið upp ásamt uppfærslu af pakkanum „@anthropic-ai/claude-code“ inni á NPM, sem er vettvangur þar sem forritarar deila kóðum sín á milli. Netverjar höfðu þegar hlaðið niður skjölunum og endurbirt á GitHub áður en Anthropic fjarlægði svo skjalið í nýrri uppfærslu. Þessi leki hefur fært almenningi og keppinautum Anthropic dýrmætar upplýsingar á silfurfati sem snúa að því hvernig mállíkanið virkar á bak við tjöldin. Meðal þess má finna lausn Anthropic við svokallaðri „samhengisóreiðu“ (e. context entropy), en það nefnist sú tilhneiging mállíkana að ruglast í ríminu og jafnvel bulla, einkum þegar samtöl eru orðin löng. Lausn Anthropic gengur út á svokallað þriggja laga minniskerfi. Þá má einnig finna skrár er varða tæknilausnir sem hafa enn ekki verið útgefnar, svo sem KAIROS sem gengur út á að Claude keyri ávallt í bakgrunni og fylgist með því sem notandi slær inn í útstöðina, svo að Claude sé ávallt upplýstur um samhengi þess sem spurt er um.
Gervigreind Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Olíutunnan nálgast aftur hundrað dali Dómari ýtir á pásu í yfirtökuferlinu Óttast kínverska gervigreind Vill leggja fimmtíu prósenta toll á kanadískar vörur Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Sjá meira