Tindastóll - ÍR 108-99 | Stólarnir veittu fyrsta höggið Arnar Skúli Atlason skrifar 2. apríl 2026 18:17 Sigtryggur Arnar Björnsson og félagar hófu úrslitakeppnina á sigri. vísir/Hulda Margrét Tindastóll vann ÍR 108-99 í fyrsta leik liðana í 8 liða úrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Leikurinn fór fram á Sauðárkróki fyrir fullu húsi. ÍRingar voru sterkari í upphafi leiks. Voru ákveðnari varnarlega og voru að komast auðveldlega á körfuna en um miðjan fyrsta leikhluta kviknaði á Tindastól. Dedrick Basile og Júlíus Orri Ágústsson voru að fara mikinn hjá Tindastól. Þeir komust yfir og leiddu eftir fyrsta leikhluta 26-24. Tindastóll byrjaði betur í öðrum leikhluta og náðu að slíta ÍRingana frá sér. Davis Geks og Sigtryggur Arnar Björnsson voru erfiðir í leik hlutanum og skoruðu þeir 19 stig saman í honum. ÍRingarnir neituðu að leggja árar í bát og Dimitrios Klonars og Jacob Falko leiddu sína menn áfram og héldu þessu í leik fyrir ÍR. Tindastóll leiddi þó í hálfleik 54-47. Í þriðja leikhluta var svipað upp á teningum Tindastóll byrjaði betur og það leit úr fyrir að þeir ætluðu að keyra yfir strákana ÍR. En Jacob og Dimitrios höfðu ekki áhuga á því og fengu Matej Kavas og Tsotne Tsartsidze til að leggja í púkkinn og þeir minnkuðu muninn hægt og rólega og þegar leik hlutanum leik voru þeir búnir að minnka þetta niður í 78-77. Í fjórða leikhluta var allt undir og Tindastóll byrjuðu eins og áður betur í fjórðungnum og enn á ný neituðu ÍR að gefast upp og þeir hengu í liði Tindastóls allt framm að lokamínútunum. Þar reyndust heimamenn sterkari á svellinu og Júlíus og Basile sigldu þessu heim fyrir Tindastól og loka tölurnar 108-99. Tindastóll leiða því einvígið 1-0 og fara með það í farteskinu yfir í Breiðholtið. Leikur tvö verður leikinn þar á þriðjudaginn næstkomandi. Atvik leiksins Júlíus Orri skoraði þrist eftir að Tindastóll tók sóknarfrákast og setti muninn upp í 5 stig á mikilvægu augnabliki í leiknum. Þetta fór með leikinn því ÍR náði ekki að vinna þetta upp. Stjörnur Hjá Tindastól var Dedrick Basile bestur hann skilaði 28 stigum, 9 fráköstum og 8 stoðsendingum, Júlíus Orri fór einnig mikinn og var með 18 stig. Hjá ÍR var Dimitrios Kolnaras með 22 stig og 8 fráköst og 5 stoðsendingar, Jacob Falko var með 20 stig og 7 stoðsendingar og Matej Kavas var með 20 stig. Dómararnir Flott frammistaða. Ekkert út á þeirra leik að setja og héldu sömu línu á bæði lið. Stemmingin og umgjörð Geggjuð stemning og greinilegt að úrslitakeppnin er hafinn á Sauðárkróki. Síkið fullt upp í rjáfur og gaman að Ghetto Hooligans voru mættir og þetta var frábært. Viðtöl Arnar Guðjónsson þjálfari Tindastóls var ánægður með sigurinn í kvöld. „Gott að ná að byrja á sigri. Nú er 1-0 og næsti leikur framundan.“ Honum fannst samt sitt lið eiga meira inni og hefðu átt að geta gengið frá leiknum fyrr. „Mér fannst við ekki alveg nógu góðir. Mér finnst við eiga einn gír inni. Fannst við eiga geta slökkt á leiknum en það var smá klaufagangur. Eftir að ENBL kláraðist erum menn búnir að vera að bíða eftir þessu en við vorum aðeins eins og beljur á svelli.” Borce Ilievski þjálfari ÍR var sáttur með leik sinna manna þrátt fyrir tap í kvöld. „Fyrst af öllu vill ég skila þakklæti til fólksins okkar. Það komu 50 manns frá okkur sem skapaði góða stemningu. Þakklæti líka til fólksins á króknum sem mætti í íþróttahúsið og bjó til góða upplifun. En að leiknum. Þetta var góður leikur. Góður úrslitakeppnisleikur. því miður vorum við ekki góðir á mikilvægum augnablikum. Oft náðum við muninum niður í eitt til tvo stig og gátum tekið forystuna þá vantaði aðeins upp á hjá okkur hvort það var aukasending eða eitthvað aukalega. Vonandi á þriðjudaginn á heimavelli vonandi getum við boðið upp á gott andrúmsloft og þetta lendir okkar meginn.” ÍR gáfust aldrei upp og héldu þessu alltaf í leik þrátt fyrir að Tindastól hafi tekið sín frægu áhlaup. „Þetta er okkar einkenni. Þó við séum að tapa gefum við alltaf allt í þetta. Við spilum alltaf svona og gefumst aldrei upp. Við vitum að Tindastóll er gott lið en þetta er bara einn leikur. Það er sumt sem við þurfum að laga og það verður í lagi fyrir næsta leik.” Bónus-deild karla Tindastóll ÍR