Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar 5. apríl 2026 08:00 Hver ríkisstjórn leggur fram fjármálaáætlun að vori sem nær yfir næstu fimm ár. Slík áætlun er meira en fjárhagslegt yfirlit ríkissjóðs. Hún á að vera grunnur að sameiginlegu samtali um forgangsröðun næstu ára: hvaða málaflokkar fá aukið vægi, hvar fjármagni verður beint til að bæta árangur og hvaða markmiðum stjórnvöld ætla sér að ná. Fjármálaáætlun á því ekki aðeins að segja til um útgjöld heldur einnig að skýra hvað samfélagið fær fyrir skattpeningana, til dæmis á sviði mennta, heilbrigðis, löggæslu og öryggismála. Þess vegna má ekki fjalla um fjármálaáætlun eins og hún sé einungis tæknilegt plagg um hallarekstur eða skuldahlutfall ríkissjóðs. Slík umræða er mikilvæg, en hún nær aðeins yfir hluta myndarinnar. Fjármálaáætlun á að setja fram skýrt samhengi milli markmiða stjórnvalda, aðgerða og fjármuna. Hún á að byggja á gagnsæi og gefa Alþingi og almenningi skýra mynd af því hvaða leið stjórnvöld hyggjast fara, hvaða markmið eru sett og með hvaða hætti árangur verður metinn. Hér komum við að kjarna málsins. Skýrleiki skiptir máli Ný fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar nær til áranna 2027 til 2031. Ef hún á að leggja raunverulegan grunn að samtali um næstu ár þurfa markmið hennar að vera skýr, sýnileg og þannig úr garði gerð að hægt sé að meta árangur þegar fram líða stundir. Það dugar ekki að tala almennt um stefnu eða góðan vilja. Ýmislegt jákvætt er vissulega í áætluninni. Þar er fjallað um stöðu efnahagsmála og ýmis krefjandi verkefni ríkisins. En í stað skýrra markmiða á mörgum málefnasviðum, svo sem í mennta- og heilbrigðismálum, er að mestu vísað til óljósra áherslna. Það er verulegur veikleiki. Í áætluninni er vísað til þess að mælanleg markmið komi fram í sérstöku mælaborði á vef stjórnarráðsins. Það er út af fyrir sig jákvætt svo langt sem það nær. Vandinn er hins vegar sá að fáir þekkja þetta mælaborð og þau markmið sem þar birtast eru oftar en ekki annaðhvort óskýr eða snúa að fremur jaðarsettum atriðum í stað þess að taka á meginviðfangsefnum hvers málaflokks. Mikilvægast er þó að þessi markmið hafa ekkert raunverulegt vægi við þinglega meðferð fjármálaáætlunarinnar. Tökum dæmi og skoðum framhaldsskólastigið Fáir telja stöðu menntamála á Íslandi viðunandi. Því mætti ætla að í fjármálaáætlun kæmu fram skýr markmið um betri árangur nemenda eða markvissari námsframvindu í framhaldsskólum. En hvað segir áætlunin? Ekki mikið af því tagi. Þar er fremur vísað til „áherslna“ en markmiða. Megináherslan á að vera „nám í takt við þarfir samfélags“. Það er auðvitað ekki rangt. En í fjármálaáætlun nægir ekki að setja fram setningar sem hljóma vel í kynningu eða á veggspjaldi. Hvaða þarfir eru þetta, hver skilgreinir þær og hvernig á að mæla árangur gagnvart jafn loðinni yfirskrift? Undir þessari fyrirsögn eru síðan talin upp þrjú ólík atriði: íslenskukennsla og inngilding, nýsköpun og aðgengi um allt land, og efling starfs og verknáms. Þetta eru allt mikilvæg mál. En þessi atriði mynda ekki eina skýra stefnu heldur fremur safn verkefna sem hvert um sig kallar á eigin markmið og eigin mælikvarða. Útkoman er því dálítið kunnugleg í stjórnsýslunni: yfirskrift sem hljómar vel, rúmar nánast allt og skuldbindur því lítið. Þegar megináherslan getur merkt næstum hvað sem er hættir hún líka að leiðbeina um nokkurn skapaðan hlut. Og hvað fæst fyrir peninginn? Almenningur á rétt á svari við því hvað fæst fyrir skattpeningana. Hver er árangurinn sem stefnt er að og hvernig verður hann mældur? Án skýrra markmiða verður fjármálaáætlun auðveldlega að skjali sem telur upp útgjöld án þess að skýra raunverulegan ávinning af ráðstöfun opinbers fjár. Þá er Alþingi gert ókleift að meta hvort stefna stjórnvalda sé skynsamleg, hvort fjármunir séu nýttir af ábyrgð og hvort opinber þjónusta sé í raun að batna. Þegar tengslin milli fjármuna, markmiða og árangurs rofna veikist ekki aðeins umræðan, heldur einnig eftirlit Alþingis. Eftirlitshlutverk Alþingis er ekki valkvætt, heldur stjórnskipuleg skylda. Gerum meiri kröfur Við eigum að gera meiri kröfur. Stjórnvöld verða að setja skýr markmið um árangur sem stefnt er að til næstu ára, mælanleg viðmið og hver beri ábyrgð á niðurstöðum. Annars blasir hættan við að sífellt meira fé fari í sífellt óskýrari verkefni, án þess að nokkur geti sagt með vissu hvað tókst, hvað mistókst og hver beri ábyrgð. Það er hvorki góð stjórnsýsla né skynsamleg ráðstöfun opinbers fjár. Kannski er það einmitt holl páskahugsun þetta árið að stjórnmálin og samfélagið allt hugi meira að árangri, ábyrgð og innihaldi, en síður að útgjöldum einum saman. Gleðilega páska. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Vagn Stefánsson Mest lesið Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson Skoðun Skoðun Skoðun Það vex eitt blóm fyrir vestan Sif Huld Albertsdóttir skrifar Skoðun Hversu mörg líf þarf áður en kerfið vaknar? Harpa Hildiberg Böðvarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þurfum við páska? Matthildur Bjarnadóttir skrifar Skoðun Íþrótta- og menningarbærinn Hafnarfjörður Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Hvað fæst fyrir skattpeningana? Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Kosningar eða Eurovision? Þorsteinn Haukur Harðarson skrifar Skoðun Viltu vita? Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar Skoðun Dauði eða ofsakvíði? Sóley Dröfn Davíðsdóttir skrifar Skoðun Kílómetragjaldið: aukin skattheimta á þá sem minna mega sín? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Sérhagsmunir eða almannahagur Sigurður K Pálsson skrifar Skoðun Sjálfsmynd þjóðar Steinar Harðarson skrifar Skoðun Viltu ná niður þinni eigin verðbólgu? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sex ástæður til að segja já við ESB-viðræðum Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvenær hætta börn að rétta upp hönd? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Þegar hljóð og mynd fara ekki saman Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson skrifar Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar Skoðun Beiting helmingaskiptareglunnar við fjárskipti hjóna Sveinn Ævar Sveinsson skrifar Skoðun Verða ríki fátæk af því að ganga í Evrópusambandið? Andrés Pétursson skrifar Skoðun Tækifæri til að lækka verðbólgu Marinó G. Njálsson skrifar Skoðun Eins gott að þjóðin viti ekki of mikið Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Sterkari saman og til þjónustu reiðubúin Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Hver heldur á fjarstýringunni í íslensku samfélagi? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvar býrðu? Ásta Þórdís Skjalddal Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Ísland selur sig ekki sjálft – og óvissa selur ekkert Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Föstudagurinn langi spyr: stöndum við með týndu börnunum okkar? Steinþór Þórarinsson skrifar Skoðun Lágir skattar og góð þjónusta fara saman í Kópavogi Guðmundur Jóhann Jónsson skrifar Skoðun Píeta samtökin 10 ára – samstaða um von Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvert stefnir stríðið í Íran? Trump valdi það, en hvað tekur við núna? Jun Þór Morikawa skrifar
Skoðun Virðisaukaskattur, raunverulegur greiðandi og áhrif á samkeppnishæfni Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun „Faðir vor“— Ákall um að afskrifa allar skuldir og lifa í kærleika Sigurvin Lárus Jónsson skrifar