Enn um Plastbarkamálið Ingólfur Bruun skrifar 29. maí 2026 13:00 Einn þáttur í hinu ömurlega Plastbarkamáli sem þarft væri að rannsaka er þáttur lögmanns ekkju fórnarlambsins, Andemariams Beyene. Umræddur lögmaður hefur ráðist af óskiljanlegri heift gegn lækni Andemariams, Tómasi Guðbjartssyni skurðlækni. Í viðtali við RÚV þann 11.7.2024 segir lögmaðurinn að rétt sé að fá niðurstöðu dómstóla á því „hvort að pyntingar séu leyfðar á sjúklingum á Íslandi.“ Hvað gengur lögmanninum til með slíkum yfirlýsingum? Með þessum ummælum er hann að saka Tómas Guðbjartsson, um pyntingar. Þetta eru rangar sakargiftir en pyntingar eru refsiverðar skv. íslenskri refsilögjöf sbr. 217., 218. og 225. gr. alm. hgl. Þessi ummæli lögmannsins myndu tvímælalaust falla undir 148. gr. alm. hgl. en þar er fjallað um rangar sakargiftir. Til marks um hve alvarlegt brot rangar sakargiftir þykja, skal bent á að refsirammi greinarinnar er fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 16 árum! Lögmaðurinn bætir síðan um betur þegar hann hefur í tvígang í viðtölum gefið í skyn að vegna húðlitar og uppruna Andemariams þá hafi mönnum verið sama um örlög hans sbr. þessi ummæli hans í viðtali á RÚV: „Ég velti því stundum fyrir mér hvort að það að þetta var jú hávaxinn Eritreumaður, dökkur á húð, að mönnum hafi kannski verið slétt sama um örlög hans.“ Með þessum ummælum er lögmaðurinn að gefa í skyn að Tómas hafi brotið 65. grein stjórnarskrár Íslands en þar segir:„Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.“ Enn og aftur er hægt að heimfæra slíkar ásakanir undir rangar sakargiftir, sbr. 148. gr. alm. hgl. Mjög þarft er að gæta réttar ekkju Andemariams en það er ekki málstað hennar til framdráttar þegar lögmaður hennar ræðst af heift gegn Tómasi Guðbjartssyni og ásakar hann um pyntingar og hafa verið „slétt sama um örlög“ Andemariams vegna húðlitar hans. Að þessu sögðu sætir furðu að sænsk yfirvöld hafi ekki gengist við sjálfsagðri kröfu ekkju Andemariams að greiða henni bætur enda aðgerðin á eiginmanni hennar gerð í Svíþjóð og á forræði Karolinska sjúkrahússins. Að mati þess sem hér ritar eiga bætur til aðstandenda Andemariams að koma frá sænskum stjórnvöldum, ekki íslenskum. Að lokum vil ég benda á grein sem ég ritaði um blekkingar Paolos Macchiarini og birtist í Fréttablaðinu þann 7. desember 2017 Höfundur er fyrrv. rannsóknarlögreglumaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Plastbarkamálið Lögmennska Mest lesið Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Betri gögn, minni stjórnsýsla? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Eru tómstundir allra? Margrét Júlía Rafnsdóttir skrifar Skoðun Öryggisnet í 90 ár! Unnur Sverrisdóttir skrifar Skoðun Þrautseigja í framlínunni Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Hjartaendurhæfing er fjárfesting Kristín E. Hólmgeirsdóttir,María Barbara Árnadóttir skrifar Skoðun Hvaða gervigreind og skýjaþjónustur mega opinberir aðilar nota? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Hvenær hættum við að vera þjóð? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Hver ertu þegar yfirmaðurinn fer út úr herberginu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Fjárfestum í heilsu – Alþjóðlegur dagur sjúkraþjálfunar Gunnlaugur Már Briem skrifar Skoðun Varnir frá 2019, ógnir frá 2026 Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hvað varð um það að vilja betri heim? Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Sjálfbærni í heimi glötunar Kristján Logason skrifar Skoðun Ert þú kannski frábær í ofbeldisforvörnum barna? Alfa Dröfn Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Gleðilegan dag læsis Auður Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Engin miskunn hjá Reykjavíkurborg Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Sjá meira
Skoðun Bókun 35, ESA og stjórnarskrá Íslands — hvenær verður EES samningurinn stjórnarskrárlega ólýðræðislegur? Eggert Guðmundsson skrifar