Stjórn Keflavíkur sendir frá sér yfirlýsingu Aron Guðmundsson skrifar 1. apríl 2026 15:04 Hörður Axel Vilhjálmsson er þjálfari kvennaliðs Keflavíkur í körfubolta. Vísir/Pawel Stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem segir að fyrir löngu hafi verið vitað að aðalþjálfari kvennaliðs félagsins, Hörður Axel Vilhjálmsson, yrði á Tenerife síðustu dagana fyrir fyrsta leik liðsins í úrslitakeppni deildarinnar. Um fjarveru hans hafi verið samið á sínum tíma.
Íþróttadeild Vísis hefur ítrekað reynt að ná tali af Herði Axel vegna málsins í dag en án árangurs. Greint var frá því í Körfuboltakvöldi í gær, eftir að Keflavík hafði tapað fyrsta leik sínum í úrslitakeppni Bónus deildarinnar í einvígi gegn KR, að Hörður Axel hefði verið á Tenerife degi fyrir leikinn mikilvæga. Sérfræðingar Körfuboltakvölds lýstu yfir undrun sinni á því að þjálfarinn væri ekki til taks í undirbúningi liðsins fyrir leikinn mikilvæga. „Þú ert að undirbúa þig fyrir úrslitakeppni en ert ekki einu sinni með liðinu þínu. Mér finnst þetta svo mikil vanvirðing,“ sagði Ólöf Helga Pálsdóttir, þáttastjórnandi Körfuboltakvölds um fjarveru Harðar Axels. Nú hefur stjórn körfuknattleiksdeildar Keflavíkur sent frá sér yfirlýsingu vegna málsins þar sem segir að stjórninni hafi verið fullkunnugt, með löngum fyrirvara, um fjarveru þjálfarans síðustu þrjá daga fyrir leik gærdagsins gegn KR. „Hún var með fullu samþykki okkar, tilkynnt okkur áður en samningar voru undirritaðir síðasta sumar og undirbúin með góðum fyrirvara,“ segir í yfirlýsingu Keflvíkinga sem má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.
Bónus-deild kvenna Keflavík ÍF Mest lesið Hættur í landsliðinu þar til skipt verður um þjálfarateymi Fótbolti „Ha? Hvernig getur það verið?“ Sport Móðir NFL-stjörnu fannst látin og bróðir hans ákærður fyrir morð Sport Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark Körfubolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Skoraði mikilvægt mark fyrir Bandaríkjamenn en fékk svo rautt spjald Fótbolti Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti Fleiri fréttir Fengið morðhótanir eftir viðskiptin við Caitlin Clark „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Sjá meira