Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar 3. apríl 2026 11:01 Markaðsöflin græða meðan börnin tapa Það er mikið rætt um skjátíma barna og ungmenna og hve miklum tíma þau verja á samfélagsmiðlum. Miðla sem ýta undir útlitsdýrkun og ósanngjarnarn samanburð sem veldur kvíða og sjálfsefa. En sjaldnar er rætt hvað það er sem skjáirnir eru að selja ungmennunum og hver ábyrgð fyrirtækja og áhrifavalda er á samfélagsmiðlum. Þar er nefnilega ekki aðeins verið að selja vörur, þar er verið að selja sjálfsmynd. Á hverjum degi streyma fyrir augum barna og ungmenna myndbönd, myndir og skilaboð sem segja þeim að málið sé að kaupa meira, panta meira, eignast meira og skipta oftar út. „Hal (e. haul)“-myndbönd, áhrifavaldar, örskammlíf trend og algóritmar sem ýta stöðugt undir samanburð og kauphegðun eru að drekkja börnunum okkar. Þetta er markaðssetning sem beinist að viðkvæmum hópi sem er enn að móta eigin sjálfsmynd. Það ætti sannarlega að vera okkur sem samfélagi áhyggjuefni. Það er vitað að ungmenni eru sérstaklega viðkvæm fyrir félagslegum samanburði, útilokun og þrýstingi um að falla inn í hópinn. Þegar markaðsöflin og áhrifavaldamenningin nýta sér það svona grímulaust, verður neysla að félagslegum gjaldmiðli. Þá verður flík ekki bara flík heldur tákn um stöðu, samþykki og því að tilheyra. En hver greiðir fyrir? Foreldrar finna fjárhagslega fyrir þessum þrýstingi samfélagsmiðla á aukna neyslu unga fólksins og jörðin greiðir fyrir neysluna umhverfislega. Við verðum að hætta að líta á þetta sem krúttlegt eða léttvægt tískuhjal. Þetta er nefnilega forvarnamál. Þegar sjálfsvirði barna er tengt við kaup, útlit og sífellda uppfærslu á sjálfum sér, þá erum við ekki aðeins að ala upp óábyrga neytendur heldur ýta undir kaupæði og jafnvel kaupfíkn. Við erum að ala upp kynslóð sem á í meiri hættu á að upplifa kvíða, óánægju og stöðuga tilfinningu um að vera ekki nóg. Ábyrgðin er okkar Þetta kallar á viðbrögð frá okkur fullorðna fólkinu. Foreldrum, skólum, frístundastarfi, sveitarfélögum og stjórnvöldum. Við foreldrar þurfum ekki aðeins að vera góðar fyrirmyndir heldur kenna börnum gagnrýnið miðlalæsi, neyslulæsi og efla sjálfsvirðingu þeirra sem byggir ekki á vörumerkjum eða þeim pakkafjölda sem kemur með hraðsendingu heim að dyrum. Við sem samfélag þurfum líka að ræða ábyrgð áhrifavalda og þeirra fyrirtækja sem græða á því að selja börnum og ungmennum að hægt sé að kaupa sér uppfærða sjálfsmynd. Verslun hefur einnig færst í leikjaform, þar sem ýta má á lukkuhjól eða fá gríðarlegan afslátt ef keypt er ein flík eða hlutur enn, en það ýtir undir skaðlega kauphegðun sem hunsar afleiðingar kaupæðisins fyrir fólk og umhverfi. Samfélag sem vill hugsa vel um börnin sín á ekki að leyfa markaðsöflum að ala þau upp. Við eigum ekki að kenna börnum að þau þurfi að kaupa meira til að vera meira. Við eigum að kenna þeim að þau séu nóg áður en þau kaupa meira og næsti pakki berst heim að dyrum. Höfundur er leik- og grunnskólakennari og umhverfissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Börn og uppeldi Samfélagsmiðlar Skóla- og menntamál Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar