Karlmenn þurfa leyfi til að ferðast lengur en í þrjá mánuði Agnar Már Másson skrifar 4. apríl 2026 23:21 Ríkisstjrón Friedrichs Merz vill stækka þýska sambandsherinn (Bundeswehr) og á næsta ári taka gildi ný lög sem kveða á um herskyldu fyrir alla karlmenn fædda 2008 eða síðar. Getty Karlmenn í Þýskalandi þurfa nú leyfi frá þýska hernum ef þeir ætla að dvelja erlendis lengur en þrjá mánuði. Breytingarnar tóku gildi í byrjun árs en hafa ekki ratað í kastljós fjölmiðla fyrr en nú. Á meðan herskylda er ekki í gildi líta stjórnvöld þó ávallt svo á að leyfið sé veitt, en herskylda tekur vissulega gildi á ný á næsta ári.
Í Þýskalandi gera ný lög það að verkum að karlmenn á aldrinum 17–45 ára þurfa sérstakt leyfi frá þýska sambandshernum ef þeir hyggjast dvelja erlendis lengur en þrjá mánuði. Litlu máli skiptir hvort menn ætli sér út til þess að stunda nám, að vinna, eða fara í langt frí eða í heimsreisu. Þessar breytingar tóku gildi 1. janúar 2026 en komust ekki í kastljós þýskra fjölmiðla fyrr en í dag þegar Frankfurter Rundschau greindi frá þessu. Málið hefur strax valdið miklum usla í Þýskalandi en að sögn þýskra stjórnvalda verður litið svo á að slíkt leyfi sé ávallt veitt þangað til að herskylda tekur aftur gildi í landinu. „Við munum hins vegar skýra með stjórnsýslufyrirmælum að leyfið teljist veitt svo lengi sem herþjónusta er valfrjáls,“ hefur þýska fréttaveitan dpa eftir talsmanni þýska varnarmálaráðuneytisins. Herskylda hefur ekki verið í gildi í Þýskalandi í rúman áratug en tekur að óbreyttu aftur gildi fyrir menn af 2008-kynslóðinni og yngri þegar ný lög taka gildi 1. janúar 2027. Þessi stjórnsýslufyrirmæli sem ráðamaðurinn vísar í hafa þó enn ekki verið gefin út. Því gildir enn sem komið er, að minnsta kosti á blaði, sú regla að „sækja þurfi um leyfi hjá viðeigandi ráðningarmiðstöð sambandshersins“ ef karlmaður eldri en 17 ára vill yfirgefa Þýskaland lengur en í þrjá mánuði. Talsmaður ráðuneytisins ítrekaði þó enn og aftur við DPA: „Þar sem herþjónusta byggir samkvæmt gildandi lögum eingöngu á sjálfboðaliðastarfi, skal að jafnaði veita slík leyfi.“ Lagabreytingunni var ætlað að tryggja það að þýski herinn væri nægilega vel mannaður, meðal annars með því að gera herstörf meira aðlaðandi svo að fólk skrái sig sjálft í herinn og auka skráningu meðal ungra manna. Yfirlýst markmið þýsku ríkisstjórnarinnar hafa verið að auka hernaðargetu landsins í ljósi innrásarstríðs Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta gegn Úkraínu. Ríkisstjórnin vill fjölga í hernum um tæplega hundrað þúsund menn á næstu tíu árum, úr um 184 þúsund í dag í hátt í 270 þúsund árið 2035.
Þýskaland Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Innlent Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum Innlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Hafði fé af mótsgesti Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Fleiri fréttir Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Sjá meira