Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 15:01 Viktor Jónsson skoraði tvö marka Skagamanna. Vísir/Anton Viktor Jónsson fór fyrir ÍA sem vann öruggan 4-0 sigur á Haukum í Akraneshöllinni í 32-liða úrslitum Mjólkurbikars karla í fótbolta í dag. HK fór áfram eftir dramatískan sigur á Fjölni.
Haukar komust með naumindum á Akranes fyrir lokun Kjalarness sökum færðar, að tveimur undantöldum. Þeir Óliver Þorkelsson og Haukur Darri Pálsson voru stöðvaðir í Mosfellsbæ og komust ekki á leiðarenda. Haukar misstu þar tvo leikmenn og þjálfararnir Guðjón Pétur Lýðsson og Óskar Örn Hauksson tóku þeirra stað á leikskýrslunni og voru á bekknum. Hvorugur tók þó þátt í leiknum þar sem Haukar sáu vart til sólar. Viktor Jónsson kom ÍA í forystu á 19 mínútu og bætti öðru marki sínu við fimm mínútum síðar. Gabríel Snær Gunnarsson skoraði þriðja markið snemma í síðari hálfleik og sjálfsmark Halls Húna Þorsteinssonar veitti sterkum Skagamönnum öruggan 4-0 sigur og sæti í 16-liða úrslitum. Í Egilshöll komu HK-ingar í heimsókn til Fjölnismanna. Viktor Andri Haraldsson skoraði fyrstu tvö mörk leiksins til að veita Fjölni 2-0 forystu og þannig stóð í hléi. Jóhann Þór Arnarsson minnkaði muninn strax í byrjun síðari hálfleiks og aðeins tíu mínútur voru liðnar af hálfleiknum þegar staðan var orðin 2-2, þökk sé öðru marki Jóhanns Þórs. Stuttu eftir það fékk Fjölnir víti og Viktor Andri skoraði sitt þriðja mark. Staðan 3-2 fyrir Fjölni. Dominik Radic jafnaði fyrir HK stundarfjórðungi fyrir leikslok og allt stefndi í framlengingu. Þar til Radic var aftur á ferðinni í uppbótartíma er hann skoraði eftir hornspyrnu. HK vann 4-3 sigur og Gunnar Heiðar Þorvaldsson stýrir liðinu áfram í 16-liða úrslit í sínum fyrsta alvöru leik sem þjálfari liðsins. Framlengt er í gervigrashöllinni að Ásvöllum þar sem Grindavík og Keflavík eigast við. Leik þeirra lauk markalausum eftir 90 mínútur. Fjörið er ekki búið í Egilshöll þar sem KR og Valur eigast þar við í bikarnum klukkan 17:00 í dag. Þeim leik verður lýst beint á Vísi. Upplýsingar um úrslit og markaskorara dagsins eru fengnar af Fótbolti.net.
Mjólkurbikar karla ÍA Haukar HK Fjölnir Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Við eigum bara svalasta fyrirliða í Evrópu“ Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti „Allur heimurinn veit hvað þessir leikmenn gera“ Handbolti Arnar kynnti landsliðshópinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Hópurinn í lokaleikjunum: Kristian snýr aftur og Daníel er með Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Ég er ekki Mohamed Salah“ Enski boltinn Fleiri fréttir Hvolsvellingur og EM-fari í Stjörnuna FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Sjá meira