Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Valur Páll Eiríksson skrifar 6. apríl 2026 15:46 Damir Muminovic kvaddi Kópavoginn í vetur og er strax farinn að láta til sín taka með Grindavík. vísir Grindavík komst áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikars karla í fótbotla með sigri á grönnunum í Keflavík eftir vítaspyrnukeppni í knatthúsi Hauka að Ásvöllum.
Grindvíkingar fengu afnot af knatthúsi Hauka við Ásvelli fyrir leik dagsins þar sem ekki var hægt að spila í utandyra í austanstorminum sem geisaði yfir suðvesturhorn landsins og víðar. Þrátt fyrir lokanir á Reykjanesbrautinni komust bæði lið í Hafnarfjörðinn og spiluðu fyrir framan örfáar hræður sem hættu sér í umferðina á brautinni. Þeir áhorfendur fengu ekkert sérlega mikið fyrir peninginn. Í það minnsta ekki hvað mörk varðar. Leiknum lauk með markalausu jafntefli og því þurfti að framlengja. Komið var fram á 119. Mínútu þegar fyrsta markið leit dagsins ljós og þar var að verki Eiður Orri Ragnarsson og Keflvíkingar héldu eflaust að sæti í næstu umferð væri klárt. Svo var ekki. Rafael Victor jafnaði fyrir Grindavík á annarri mínútu uppbótartíma og því farið í vítaspyrnukeppni. Ásgeir Orri Magnússon, markvörður Keflavíkur, varði fyrstu spyrnu Grindvíkinga frá Rafael Victor en svo klúðraði nafni hans og markaskorarinn Ásgeir Páll Magnússon er hann skaut yfir. Aðrir skoruðu úr sínum spyrnum þar til Hjörvar Daði Arnarsson, markvörður Grindavíkur, varði frá Marin Mudrazija. Dómari leiksins flautaði og sagði hann hafa farið af línunni fyrir vörsluna. Mudrazija steig aftur á punktinn og aftur varði Hjörvar Daði. Staðan 3-2 fyrir Grindavík þegar Keflavík átti eina spyrnu eftir og ljóst að Damir Muminovic gat tryggt Grindvíkingum sigur. Hann gerði það af öryggi. Grindavík vann vítaspyrnukeppnina 4-2 og henti nágrönnum sínum úr keppni en eru á móti komnir í 16-liða úrslit bikarsins.
UMF Grindavík Keflavík ÍF Besta deild karla Lengjudeild karla Mjólkurbikar karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira