Körfubolti

Keflavíkurstrákarnir urðu Scania-meistarar og áttu Scania-kónginn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Davíð Breki Antonsson var kosinn Scania-kóngur og sést hér með verðlaunin í mótslok sem besti leikmaður mótsins og svo fyrir sigur Keflavíkur.
Davíð Breki Antonsson var kosinn Scania-kóngur og sést hér með verðlaunin í mótslok sem besti leikmaður mótsins og svo fyrir sigur Keflavíkur. @Keflavík Karfa

Tíundi flokkur Keflavíkur varð Scania-meistari í gær en Scania-mótið er óopinbert Norðurlandamót yngri flokka í körfubolta.

Keflavik vann sænska liðið Kungsholmen Basket með níu stiga mun í úrslitaleiknum, 68-59.

Davíð Breki Antonsson og Arnar Freyr Elvarsson voru báðir valdir í lið mótsins og Davíð var svo valinn besti leikmaður (Scania Kóngur) mótsins í U16 ára aldursflokki.

Keflavíkurstrákarnir skoruðu níu þriggja stiga körfur gegn fjórum í úrslitaleiknum en þeir voru 21-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Sænska liðið var síðan 35-32 yfir í hálfleik. Keflavik vann þriðja leikhlutann 21-14 og svo lokaleikhlutann 15-10.

Það voru margir að skila stigum hjá Keflavíkurliðinu í úrslitaleiknum því fjórir leikmenn voru með á bilinu fjórtán til sautján stig.

Bartosz Porzezinski og Arnar Freyr Elvarsson voru stigahæstir með sautján stig, Sigurður Karl Guðnason skoraði fimmtán stig og Davíð Breki Antonsson var með fjórtán stig.

Aðrir sem skoruðu fyrir Keflvíkinga í úrlsitaleiknum voru Óliver Daði Rúnarsson (3 stig) og Hrafnkell Blær Sölvason (2 stig) en aðrir leikmenn liðsins voru Elvar Logi Guðnason, Nicolas Hrafn Place, Týr Kristjánsson, Tómas Aron Sigurðsson, Pétur Guimaraes Santos, Hinrik Sveinsson og fyrirliðinn Ágúst Ingi Kristjánsson.

Keflavik vann alla fimm leiki sína á mótinu en þeir unnu sænska liðið Östersund 82-73 í undanúrslitaleiknum. Liðið vann einnig tvö önnur sænsk lið og eitt danskt lið á leið sinni í leiki um sæti.

Davíð Breki var stigahæstur hjá liðinu á mótinu með 21,4 stig í leik en Sigurður Karl skoraði 17,0 stig í leik og Arnar Freyr var með 16,2 stig í leik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×