Vöknum, foreldrar, afar og ömmur! Jón Pétur Zimsen skrifar 8. apríl 2026 07:03 Um 40% 2 ára barna í USA eiga/hafa aðgang að iPad eða spjaldtölvu. Líklegt er að hlutfallið sé ekki lægra hérlendis enda erum við ein tæknivæddasta þjóð heims. Fyrir vikið missa börn af því að geta leiðst og verða af nauðsynlegu þroskaferli vegna þess. Ef skjárinn er ekki nálægur kalla börnin eftir honum nánast strax um leið og þau „hafa ekkert að gera“. Eðlilegur leiði þvingar börnin til að takast á við hann, finna sér eitthvað að gera (vera gerendur, ekki þiggjendur) og ímyndunarafl og þrautseigja aukast. Afkvæmi manna eru lengi að verða sjálfbjarga og taka sér langa tíma til að þroskast og mynda taugatengingar í heilanum í gegnum alls konar bein félagsleg samskipti. Nú missa mörg börn mikið af þessum mikilvægum tíma vegna skjáanna. Rannsóknir, t.d. úr Adolescent Brain Cognitive Development Study, sýna að meiri skjátími hjá börnum tengist mælanlegum breytingum í heilabyggingu, t.d. minni þykkt í heilaberki og breytingum í hvíta efninu. Aðskilnaðarkvíði við skjáina birtist stundum þegar börnin þurfa að skilja við skjáinn eftir bílferðina á leikskólann eftir að hafa horft á hann á leiðinni þangað, stundum með gráti og látum. Z-kynslóðin er fyrsta kynslóðin sem vísbendingar eru um að hún mælis verr en sú fyrri hvað vitsmuni varðar (Flynn áhrifin), t.d.: Styttri athyglisspönn Verra minni Verra læsi Minni talnaskilning Minni framkvæmdafærni Lægri greindarvísitölu Sumir halda að stutt myndskeið með „hættulausu“ efni (t.d. hoppandi kettlingar) hafi a.m.k. ekki neikvæð áhrif, það er rangt. Börnin venjast hratt á að horfa á tilgangslaus myndbrot og heilinn missir eiginleikann til lengri tíma einbeitingar sem er grunnur lesskilnings og dýpra náms. Skjánotkun getur haft neikvæð áhrif á sjón barna og þau geta orðið fyrir hormónatruflunum, þau hreyfa sig mun minna, offita eykst og tengslarof getur gert vart við sig. Þessi mikla örvun og dópamínskot inn í kerfið getur haft veruleg neikvæð áhrif á heilann. Smábörn eru í meira mæli minna talandi, kunna síður á klósettið/koppinn, hafa ekki séð bækur og þegar þau komast í þær reyna þau að „strjúka“ blaðsíðurnar, kunna ekki að fletta og eiga erfiðara með að tengjast öðrum. Skjáir eru eins og rafsnuddur, mjög öflugar snuddur sem hindra bein mannleg samskipti sem eru grunnur þroska og velferðar okkar allra. Foreldrar, afar og ömmur, vöknum. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Skóla- og menntamál Jón Pétur Zimsen Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar