Stebbi Jak sýknaður af ákæru um líkamsárás Lovísa Arnardóttir skrifar 8. apríl 2026 15:48 Stefán er söngvari hljómsveitarinnar Dimmu. Daniel Thor Stefán Jakobsson tónlistarmaður hefur verið sýknaður af ákæru um líkamsárás. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness síðdegis í dag.
Ómar R. Valdimarsson, verjandi Stefáns, á ekki von á því að málinu verði áfrýjað. Hann staðfestir að Stefán hafi verið sýknaður af öllum ákærum og að bótakröfu hafi verið vísað frá. Fyrst var greint frá á vef DV. Ómar segir niðurstöðu dómsins hafa verið að atvikum hafi ekki verið háttað með þeim hætti sem er lýst í ákæru og að ekki sé hægt að útiloka að brotaþoli hafi hlotið áverka sína af annarri ástæðu. Fjallað var um málið á Vísi í febrúar en þá lýsti Stefán í yfirlýsingu á Facebook yfir sakleysi sínu vegna ákærunnar. Stefán er einkum þekktur sem söngvari hljómsveitarinnar Dimmu en einnig fyrir eigin tónlistarferil og hefur meðal annars tekið þátt í Söngvakeppni sjónvarpsins. „Í dag mætti ég í dómsal til þingsetningar á ákærumáli. Aldrei í lífinu bjóst ég við að mæta á slíkan stað. Málið varðar að fyrir rúmum tveimur árum var ég staddur í leigubíl ásamt eiginkonu minni og öðru pari. Ég þekkti konuna vel en manninn sama og ekkert,” skrifaði Stefán um málið í febrúar. Maðurinn hafi síðan, án fyrirvara, ráðist á sig með orðum „og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir allra viðstaddra róaðist hann ekki. Hann endaði svo á að ráðast á mig líkamlega. Maðurinn hefur sem sagt kært mig fyrir líkamsárás og að auki hefur hann áreitt mig og fólk í kringum mig með mjög grófum hætti í yfir tvö ár,“ sagði í yfirlýsingu Stefáns fyrir tveimur mánuðum. Í umfjöllun DV um málið á þeim tíma kom fram að Stefán hefði verið sakaður um að gefa manni olnbogaskot í leigubíl í október árið 2023. Maðurinn hafi hlotið sár á vör og þrjú brot á andliti. Í frétt DV um málið í dag kemur fram að Stefán hafi verið sýknaður vegna þess að ekki þótti sannað að maðurinn hefði hlotið áverka sína í bílferðinni.
Dómsmál Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent „Sorglegt að þetta sé staðan“ Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent Fleiri fréttir Talsvert fleiri karlar en konur teknir fyrir akstur undir áhrifum „Sorglegt að þetta sé staðan“ Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Sjá meira