Menntun Helgu Völu er fjárfesting – ekki gjöf Einar G. Harðarson skrifar 9. apríl 2026 09:30 Í umræðu um hagvöxt og framtíð Íslands gleymist stundum hið augljósa: að menntun er ekki kostnaður heldur fjárfesting. Þjóðir sem hafa náð bestum árangri efnahagslega eru ekki þær sem spara í menntakerfinu, heldur þær sem byggja markvisst upp þekkingu, hæfni og mannauð. Það má færa sterk rök fyrir því að tengsl séu á milli menntunar og hagvaxtar. Þegar litið er til ríkustu hagkerfa heims sést að þau standa einnig framarlega í menntun. Singapúr er skýrasta dæmið. Landið hefur náð um 150 þúsund dollurum á mann í kaupmætti og er í fremstu röð í heiminum samkvæmt alþjóðlegum mælingum á námsárangri. Sama má segja um ákveðin svæði í Kína sem hafa sýnt fram á gríðarlegan hagvöxt samhliða sterkum árangri í námi. Í Bandaríkjunum og víða í Evrópu má einnig sjá að öflug háskólasamfélög og rannsóknir tengjast beint aukinni framleiðni og nýsköpun. Í ljósi þessa er umræðan hér á landi stundum með ólíkindum. Ég er ekki aðdáandi Helgu Völu Helgadóttur, þvert á móti, en hún hefur engu að síður rétt fyrir sér í þessu lykilatriði: námslánakerfið er orðið mörgum námsmönnum þung byrði og er samfélagi okkar til skammar. Námslán eru ekki gjöf. Þau eru fjárfesting. Að halda öðru fram er skammsýni. Það vekur sérstaka furðu að hagfræðingur, haldi því fram að verið sé að „gefa“ námsmönnum fé. Slík fullyrðing bendir til alvarlegs misskilnings á eðli menntunar í hagkerfi. Menntun er ekki gjöf heldur ein arðbærasta fjárfesting sem samfélag getur ráðist í. Hagfræðin ætti einmitt að kenna okkur þetta. Einstaklingur sem menntar sig eykur framleiðni sína, skilar hærri tekjum og greiðir meiri skatta til samfélagsins til lengri tíma. Samfélagið fær þannig margfalt til baka það sem það leggur í menntun. Að leggja þungar skuldir á námsmenn er því ekki aðeins ósanngjarnt heldur einnig óskynsamlegt út frá einföldum hagfræðilegum rökum. Skuldsettir námsmenn þýðir veikari framtíð. Þegar litið er til alþjóðlegra mælinga eins og PISA-rannsóknarinnar kemur skýrt fram að Ísland stendur ekki jafn sterkt og við myndum vilja. Á sama tíma og lönd eins og Singapúr og sum svæði í Kína ná topp árangri er Ísland undir meðaltali. Þetta ætti að vera viðvörun. Ef við vanrækjum menntun mun það óhjákvæmilega hafa áhrif á hagvöxt og lífskjör til framtíðar. Ísland er enn meðal ríkustu þjóða heims, en sú staða er ekki sjálfgefin til framtíðar. Lönd eins og Sviss og Noregur hafa byggt upp sterkar stofnanir, öflugt menntakerfi og langtímahugsun í efnahagsmálum. Í Sviss er lögð áhersla á að minnka skuldsetningu námsmanna og styðja þá beint með styrkjum. Í Noregi er kerfið mjög þróað og oft talið eitt það besta í heimi; þar fá námsmenn lán frá Lånekassen en allt að 40% þeirra breytast í styrk ef námi er lokið. Þessar þjóðir skilja að mannauður er mikilvægasta auðlindin. Kjarni málsins er einfaldur. Ef Ísland ætlar að halda stöðu sinni meðal fremstu þjóða þarf að hætta að líta á menntun sem útgjaldalið sem þurfi að halda niðri. Í staðinn þarf að líta á hana sem lykil fjárfestingu í framtíð þjóðarinnar. Spurningin er því ekki hvort við höfum efni á að styðja betur við námsmenn. Spurningin er hvort við höfum efni á því að gera það ekki. Höfundur er fyrrverandi stjórnarmaður í Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Einar G. Harðarson Námslán Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar