Segist hafa fullt traust stjórnar og stuðningsmanna Valur Páll Eiríksson skrifar 10. apríl 2026 13:00 Það þrengir að Slot þessi dægrin. Chris Brunskill/Fantasista/Getty Images Arne Slot, þjálfari Liverpool, segist hafa fullan stuðning frá stjórn félagsins og stuðningsmönnum þess þrátt fyrir slæmt gengi liðsins og aukna óvissu um framtíð hans í Bítlaborginni.
Slot tók við þjálfun Liverpool af Jurgen Klopp sumarið 2024 og stýrði liðinu til Englandsmeistaratitils á fyrstu leiktíð. Önnur leiktíðin hefur verið öllru strembnari þar sem liðið er í vandræðum í keppni um Evrópusæti. Liverpool hefur aðeins fengið eitt stig úr síðustu þremur deildarleikjum, féll úr leik í enska bikarnum síðustu helgi eftir 4-0 slátrun Manchester City og tapaði 2-0 fyrir PSG í Meistaradeild Evrópu í miðri viku, í leik sem hefði hæglega getað tapast umtalsvert stærra. Sjálfstraust innan Liverpool-liðsins virðist í sögulegri lægð og pressan aukist með hverri vikunni sem líður á hollenska stjórann og virðist tímaspursmál hvenær honum verði vikið úr starfi. Slot er með samning til ársins 2027 og segist finna stuðning úr öllum áttum, þrátt fyrir stöðuna. „Ég endurtek mig töluvert þessa dagana. En ég finn mikinn stuðning. Ekki aðeins frá eigendunum heldur Richard (Hughes) og Michael (Edwards). Mikinn stuðning frá þeim, og eins skrýtið og það kann að hljóma finn ég einnig mikinn stuðning frá stuðningsmönnum liðsins,“ segir Slot á blaðamannafundi í aðdraganda leiks Liverpool við Fulham um helgina. Liverpool mætir Fulham klukkan 16:30 á laugardag. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn Sport 2.
Liverpool FC Enski boltinn Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Arsenal nálgast kaup á Guimaraes Metfjöldi nýrra þjálfara Henderson genginn í raðir Chelsea Chelsea kaupir strákinn sem Bellingham sló og skoraði á móti Íslandi Sjáðu mörkin og kennslustundina sem Liverpool fékk frá Leeds í seinni Newcastle hafnar tilboði Arsenal í Guimaraes Mátti ekki klæða sig við hlið hinna leikmanna Man. Utd. Þjálfari Man Utd hættir mánuði fyrir mót Finnst Maresca vera fullkominn fyrir City Hló er hann var spurður út í Vinícius Júnior „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Fyrsta mark Tonali í sigri á Chelsea Redknapp: Tottenham er að hegða sér eins og stórklúbbur í sumar Newcastle borgar meira en einn og hálfan milljarð til að fá Jaissle Chelsea sleppur við stigafrádrátt en fær háa sekt Leikmenn Liverpool rifust um fyrirliðabandið Arbeloa sækir fyrrum lærisveina úr akademíu Real Madrid Telur að Vinícius Júnior sé að spila með Arsenal Chelsea kaupir Lacroix fyrir rúmlega fimmtíu milljónir punda Jaissle líklegastur til að taka við af Howe Howe hættur hjá Newcastle Rio Ngumoah tryggði Liverpool sigur Welbeck verður sá fyrsti í fjögur ár Enska deildin mun taka hart á platmeiðslum markvarða Dyche segir að Heiðar hafi verið sá lélegasti á æfingum Liverpool undirbýr viðræður við PSG um Barcola Sjá meira