Mikilvægt að tala saman, líka karlar Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 10. apríl 2026 14:22 Börkur Reykjalín Brynjarsson heldur í sjötta skipti utan um Píeta- hlaupið sem fer fram á morgun. Hann hvetur fólk til að hreyfa sig en ekki síður til að tala saman, sérstaklega þegar því líður illa. Hann er hér lengst til hægri í Píeta-hlaupinu á síðasta ári. Vísir Hið árlega hlaup til styrktar Píeta samtökunum fer fram í fjórum landshlutum á morgun og hafa staðirnir aldrei verið fleiri. Talsmaður hlaupsins segir hátt í þúsund manns hafa sýnt því áhuga enda um að ræða málefni sem snertir marga. Markmiðið í ár sé að vekja athygli á mikilvægi samræðu og hreyfingar fyrir andlega heilsu. Píeta-hlaupið hefst kl. níu í fyrramálið við Vífilstaðavatn í Garðabæ, við íþróttamiðstöðina á Hólmavík, við Dalvíkurkirkju og söluskálann Loppu á Fáskrúðsfirði. Hlaupið verður til kl. 13. Börkur Reykjalín Brynjarsson stofnandi og talsmaður hlaupsins segist finna mikinn áhuga fyrir því í ár. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Við erum að halda hlaupið í sjötta skiptið og höfum verið að fá frábærar viðtökur. Yfir níu hundruð manns eru t.d. búnir að sýna hlaupinu áhuga á Facebook. Við erum ekki með fasta skráningu því það er ekki skylda að kaupa miða. Hlaupið snýst aðallega um að vekja athygli á Píeta samtökunum og hvað þau standa fyrir,“ segir Börkur. Mikilvægt að tala saman, líka karlar Börkur segir markmið hlaupsins í ár eins og áður að vekja athygli á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega heilsu en líka mikilvægi þess að opna sig um eigin líðan. „Við þurfum að tala meira saman, sérstaklega karlmenn því samkvæmt alþjóðlegri tölfræði eru um sjötíu prósent sjálfsvíga framin af körlum. Karlar þurfa að opna sig betur um líðan sína og tala meira saman. Þá er líka mikilvægt að nota hreyfinguna sem er besta geðlyfið,“ segir Börkur. Frá Píeta-hlaupinu á síðasta ári. Vísir Sá ljósið eftir símtal við Píeta Börkur segir að um þrjú hundruð manns hafi hringt í ráðgjafa Píeta á síðasta ári en samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Þar á meðal hann sjálfur í fyrsta skipti en hann hefur eins og áður hefur kom fram starfað við hlaupið síðustu ár. „Mér leið afar illa um tíma, þetta lýsti sér sem algjöru svartnætti og átti erfitt með að greina hvað ég gæti gert næst. Ég fann fyrir tilgangsleysi og lítilli þörf fyrir að vera til staðar. Þegar ég loks hringdi í ráðgjafa Píeta þá guggnaði ég í fyrsta skipti. Það var hins vegar hringt til baka eftir hálfa mínútu og þá fékk ég gott og hvetjandi símtal sem gaf mér von. Ég skildi að þetta fjallaði ekki bara um mig heldur alla fjölskylduna,“ segir Börkur. Símtalið hafi verið afar mikilvægt á þessum tímapunkti. Börkur segir að upp frá þessu hafi allt verið á leiðinni í rétta átt. „Það skiptir gríðarlega miklu máli að finna og fá skilning frá annarri manneskju þegar maður er langt niðri. Það er líka mikilvægt að finna að það er til fólk sem er tilbúið til að hlusta á þig án þess að dæma. Það losar um ræða við aðra um líðan sína og hjálpar manni að skilja sjálfan sig. Þá heyrirðu líka í sjálfum þér. Það hjálpar manni líka til að finna hvaða leið á að feta í átt að betri líðan, því yfirleitt er maður sérfræðingur í sjálfum sér, þegar öllu er á botninn hvolft,“ segir Börkur. Börkur hvetur fólk til að hreyfa sig á morgun, „Mig langar að hvetja alla til að hlaupa með okkur. Ef þú ert í nágrenni við staðina þar sem hlaupin fara fram endilega láttu sjá þig. Ef það er ekki hlaup nálægt þér á morgun staddu þá upp og labbaðu hring. Hreyfingin bætir og kætir,“ segir Börkur að lokum. Heilsa Geðheilbrigði Hlaup Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira
Píeta-hlaupið hefst kl. níu í fyrramálið við Vífilstaðavatn í Garðabæ, við íþróttamiðstöðina á Hólmavík, við Dalvíkurkirkju og söluskálann Loppu á Fáskrúðsfirði. Hlaupið verður til kl. 13. Börkur Reykjalín Brynjarsson stofnandi og talsmaður hlaupsins segist finna mikinn áhuga fyrir því í ár. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. „Við erum að halda hlaupið í sjötta skiptið og höfum verið að fá frábærar viðtökur. Yfir níu hundruð manns eru t.d. búnir að sýna hlaupinu áhuga á Facebook. Við erum ekki með fasta skráningu því það er ekki skylda að kaupa miða. Hlaupið snýst aðallega um að vekja athygli á Píeta samtökunum og hvað þau standa fyrir,“ segir Börkur. Mikilvægt að tala saman, líka karlar Börkur segir markmið hlaupsins í ár eins og áður að vekja athygli á mikilvægi hreyfingar fyrir andlega heilsu en líka mikilvægi þess að opna sig um eigin líðan. „Við þurfum að tala meira saman, sérstaklega karlmenn því samkvæmt alþjóðlegri tölfræði eru um sjötíu prósent sjálfsvíga framin af körlum. Karlar þurfa að opna sig betur um líðan sína og tala meira saman. Þá er líka mikilvægt að nota hreyfinguna sem er besta geðlyfið,“ segir Börkur. Frá Píeta-hlaupinu á síðasta ári. Vísir Sá ljósið eftir símtal við Píeta Börkur segir að um þrjú hundruð manns hafi hringt í ráðgjafa Píeta á síðasta ári en samtökin sinna forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða og styðja við aðstandendur. Þar á meðal hann sjálfur í fyrsta skipti en hann hefur eins og áður hefur kom fram starfað við hlaupið síðustu ár. „Mér leið afar illa um tíma, þetta lýsti sér sem algjöru svartnætti og átti erfitt með að greina hvað ég gæti gert næst. Ég fann fyrir tilgangsleysi og lítilli þörf fyrir að vera til staðar. Þegar ég loks hringdi í ráðgjafa Píeta þá guggnaði ég í fyrsta skipti. Það var hins vegar hringt til baka eftir hálfa mínútu og þá fékk ég gott og hvetjandi símtal sem gaf mér von. Ég skildi að þetta fjallaði ekki bara um mig heldur alla fjölskylduna,“ segir Börkur. Símtalið hafi verið afar mikilvægt á þessum tímapunkti. Börkur segir að upp frá þessu hafi allt verið á leiðinni í rétta átt. „Það skiptir gríðarlega miklu máli að finna og fá skilning frá annarri manneskju þegar maður er langt niðri. Það er líka mikilvægt að finna að það er til fólk sem er tilbúið til að hlusta á þig án þess að dæma. Það losar um ræða við aðra um líðan sína og hjálpar manni að skilja sjálfan sig. Þá heyrirðu líka í sjálfum þér. Það hjálpar manni líka til að finna hvaða leið á að feta í átt að betri líðan, því yfirleitt er maður sérfræðingur í sjálfum sér, þegar öllu er á botninn hvolft,“ segir Börkur. Börkur hvetur fólk til að hreyfa sig á morgun, „Mig langar að hvetja alla til að hlaupa með okkur. Ef þú ert í nágrenni við staðina þar sem hlaupin fara fram endilega láttu sjá þig. Ef það er ekki hlaup nálægt þér á morgun staddu þá upp og labbaðu hring. Hreyfingin bætir og kætir,“ segir Börkur að lokum.
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Heilsa Geðheilbrigði Hlaup Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Innlent Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Erlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Fleiri fréttir Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Draugagangur, búrtíkur og öngull í rassi „Þetta vita Einar og Björg“ Skotið fór í gegnum handlegg og endaði í öxl Hafa þegar rætt við Daða Má um samgöngusáttmálann Taka ásýnd Varmár alvarlega og stöðva borframkvæmdir Mun dæma meirihlutann af verkunum Sjálfstæðismenn og Framsókn í eina sæng í Múlaþingi Sjá meira