Innganga Íslands í ESB: Hvað verður um lífeyrissjóðinn þinn? Júlíus Valsson skrifar 12. apríl 2026 14:00 Ekki er ýkja langt síðan að öllum varagjaldeyrissjóði Íslands var stolið af óprúttnum aðilum og hann færður í skjól hjá Arion banka í Luxemburg þar sem hann gufaði upp á kostnað almennings á Íslandi. Margir óttast nú að sömu örlög bíði þeirra fjármuna sem geymdir eru í íslenskum lífeyrissjóðum, þ.e. ef Ísland gengi í ESB, einkum í ljósi vægast sagt afar gagnrýniverðrar framkomu sambandsins gagnvart Íslandi í Icesave-málinu. Sporin hræða. Gjaldþrot ESB Evrópusambandið stendur frammi fyrir verulegum fjárhagslegum áskorunum. Örvænting virðist einkenna ákvarðanir embættismanna í Brussel, sem telja helstu lausnir felast í aukinni hervæðingu, framleiðslu hergagna sem og að sækja í fjármuni ríkja utan ESB. Þar eru íslensku lífeyrissjóðirnir og olíusjóður Noregs í sigtinu. Þótt ESB-ríkin séu skuldbundin til að greiða vinnandi fólki lífeyri við starfslok, benda gögn úr ríkisreikningum Eurostat til þess að hlutfall ófjármagnaðra lífeyrisskuldbindinga af landsframleiðslu hvers ríkis sé í flestum tilfellum um 200%–400% og fari hækkandi. Lífeyriskerfi ESB stendur því frammi fyrir alvarlegum áskorunum, og ljóst er að mörg ríki innan Evrópu kunna að lenda í verulegum erfiðleikum með að standa undir lífeyrisgreiðslum í framtíðinni. ESB hefur litið á þessi vandamál tengd lífeyrisgreiðslum sem „samevrópsk vandamál“. Spurning vaknar hvort Íslendingar ættu að taka þátt í að leysa þessi vandamál fyrir aðrar þjóðir sem standa frammi fyrir alvarlegum áskorunum í lífeyrismálum?Íslenska lífeyrissjóðakerfiðLífeyrissjóðakerfið á Íslandi byggir á svokölluðu uppsöfnunarkerfi, öfugt við langflest lönd ESB (t.d. Danmörku, Holland, Svíþjóð og Eistland), sem fjármagna lífeyrisgreiðslur hvers árs með skattheimtu í gegnumstreymiskerfi (e. pay-as-you-go). Þetta fyrirkomulag er gerólíkt því sem Ísland býr við, sem byggir á skyldu hvers launþega til að leggja hluta launa sinna í lífeyrissjóð sem síðar á að standa undir lífeyri hans. Þetta kerfi hefur reynst Íslendingum vel, þótt það hafi stundum verið gagnrýnt, einkum vegna samþjöppunar valds og lögbundinnar skylduaðildar, sem einnig er fyrir hendi á svipuðu formi, m.a. í Hollandi, Svíþjóð, Danmörku og Noregi. Slík skylduaðild í öðrum löndum er í flestum tilvikum bundin við ákvæði kjarasamninga.Þjóðarsjóður ÍslandsHeildareignir íslenskra lífeyrissjóða námu 7.945,5 milljörðum í septemberlok 2024 samkvæmt tölum Seðlabankans. Það samsvarar um 176% af áætlaðri landsframleiðslu þess árs, sem er mun hærra hlutfall en í flestum ESB-löndum. Þetta má líta á sem þjóðarsjóð, sem ekki ætti að skerða undir neinum kringumstæðum, hvað þá láta ræna.Áhrif íslensku lífeyrissjóðanna á hagkerfiðVegna stærðar sinnar eru íslenskir lífeyrissjóðir einn áhrifamesti þáttur efnahagslífsins hér á landi. Með eignir sem nema um tvöfaldri landsframleiðslu hafa þeir víðtæk áhrif á vexti, fjárfestingar, húsnæðismarkað og jafnvel hagstjórn landsins. Þeir stuðla að því að Ísland búi við kerfi sem er að mestu leyti sjálfbært. Ólíkt flestum ESB-ríkjum, þar sem lífeyrir er greiddur af skatttekjum hvers tíma, byggir íslenska kerfið á raunverulegum sparnaði. Þetta hefur margþætt áhrif, m.a. í formi minni fjárhagslegrar byrðar á ríkissjóð til framtíðar og aukins fjármagns í umferð til fjárfestinga.Lífeyrissjóðirnir stuðla einnig að virkum skuldabréfamarkaði. Þeir kaupa ríkisskuldabréf, fjármagna sveitarfélög og veita fyrirtækjum aðgang að langtímafjármagni. Án þeirra væri Ísland líklega með hærri vexti, minna aðgengi að lánsfé og veikari innviði.Íslenskir lífeyrissjóðir geta einnig stuðlað að stöðugleika í efnahagslegum niðursveiflum með því að halda áfram að fjárfesta þegar aðrir fjárfestar draga sig í hlé, þar sem þeir starfa með langtímasjónarmið að leiðarljósi fremur en skammtímahugsun.Áhrif inngöngu Íslands í EvrópusambandiðMargir hafa velt því fyrir sér hvaða áhrif innganga Íslands í Evrópusambandið hefði á eignir þeirra og réttindi í lífeyrissjóðum. Við því er ekkert einfalt svar. Enginn veit með vissu hver langtímaáhrifin yrðu, þar sem regluverk sambandsins er síbreytilegt og að verulegu leyti ófyrirsjáanlegt. ESB leggur áherslu á samkeppni og opna fjármagnsmarkaði. Þetta gæti smám saman dregið úr hlutverki sjóðanna sem „stoð íslenska hagkerfisins“ og aukið samkeppni um sparnað landsmanna. Margir telja því að smám saman gæti orðið veruleg breyting á umgjörð og hlutverki lífeyrissjóðanna hér á landi. Búast má m.a. við auknum þrýstingi á samræmingu lífeyriskerfa meðal ESB-ríkja og aukinni þátttöku í sameiginlegum fjármálakerfum ESB, ekki síst þar sem stefnt er að aukinni samþættingu m.a. með stofnun eins sambandsríkis. Það er því algjörlega óljóst hvernig framtíðarreglur ESB kunna að þróast og hversu mikið svigrúm lítil þjóðríki eins og Ísland hafa til að breyta og þróa sín eigin lífeyriskerfi.Íslensku lífeyrissjóðirnir eru eitt sterkasta efnahagslega tæki þjóðarinnar.Íslenska lífeyriskerfið, sem telst meðal þeirra fremstu á heimsvísu, og réttindi íslenskra lífeyrisþega teljast meðal mikilvægustu réttindamála einstaklinga á Íslandi. Fullyrðingar hafa komið fram um að ESB hafi áhuga á eignum íslenskra lífeyrissjóða og að það hyggist hafa áhrif á niðurstöður væntanlegrar þjóðaratkvæðagreiðslu, sem er að sjálfsögðu afar óeðlilegt. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur algjörlega forðast að fjalla um þau vandamál, mögulega neikvæð áhrif og það fjártjón sem aðild að ESB gæti haft í för með sér fyrir íslenska lífeyrisþega.Afar erfitt er að greina einhverja jákvæða þætti fyrir íslenska lífeyrisþega sem gætu fylgt því að Ísland gerðist aðili að ESB.Það sem skiptir máli er hvort Ísland muni áfram hafa fullt forræði yfir sínum stærsta þjóðarsjóði eða hvort ákvarðanir um hann verði í framtíðinni teknar í Brussel?Hvort er skynsamlegra fyrir Ísland?Höfundur er læknnir og fullveldissinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Júlíus Valsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar