Körfubolti

Læknirinn yfir­gefur höllina

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Doc Rivers náði hátindi ferilsins sem þjálfari Celtics.
Doc Rivers náði hátindi ferilsins sem þjálfari Celtics. Mynd/AP

Milwaukee Bucks er að fara í enn eina þjálfaraleitina þar sem Doc Rivers fær ekki að halda áfram með liðið.

Það er þó smá eftirspurn eftir kröftum Rivers hjá félaginu og verið að ræða hvort hann verði í ráðgjafarhlutverki næsta vetur.

Rivers vann 97 leiki og tapaði 103 sem þjálfari Bucks. Fyrstu tvö árin féll liðið út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar en komst ekki í úrslitakeppnina í ár.

Meiðsli hafa leikið Bucks grátt síðustu ár en samband Rivers og leikmanna liðsins er sagt hafa súrnað ansi mikið í vetur.

Rivers var útefndur í heiðurshöll NBA-deildarinnar í ár. Hann leiddi Boston Celtics til meistaratitils árið 2008 og er sjötti sigursælasti þjálfari sögunnar í deildarkeppninni. Hann er í fjórða sæti yfir sigra í úrslitakeppninni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×