Milljarðar gætu farið í að flytja íslenskt sorp úr landi Birgir Olgeirsson skrifar 13. apríl 2026 23:32 Jón Viggó Gunnarsson er framkvæmdastjóri Sorpu. Vísir/Bjarni Einarsson Milljarðar króna gætu farið árlega í að flytja íslenskt sorp úr landi til brennslu á næstu árum verði ekki ráðist í nýja innviði hér heima. Sorpa og undirbúningsfélag um hátæknisorpbrennslu telja hagkvæmara að reisa stöð á Suðvesturlandi, nýta orkuna hér innanlands og draga þannig úr kostnaði til lengri tíma.
Í dag kostar um einn milljarð króna á ári að flytja 40 þúsund tonn af sorpi til Svíþjóðar í brennslu. Taki bann við urðun blandaðs úrgangs gildi árið 2028 gæti þurft að senda um 80 þúsund tonn úr landi á ári og kostnaðurinn hækkað í fimm til sex milljarða króna. „Okkur finnst þetta ansi stór upphæð og ég held að það sé betur varið í að reyna fjárfesta í innviðum hér á landi og nýta orkuna í eitthvað gáfulegt,“ segir Jón Viggó Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sorpu. Þar er kjarninn í verkefninu: að hætta að greiða sífellt hærri upphæðir fyrir brennslu erlendis og nýta orkuna hér heima í staðinn. Áætlað er að stöðin kosti 25 til 30 milljarða króna og hafa innviðafjárfestar og sjóðir sýnt verkefnu áhuga. Vonir standa til að framkvæmdir geti hafist innan tveggja ára. Horft er til suðvesturlands fyrir staðsetningu stöðvarinnar þar sem mestur úrgangur fellur til. „Helguvíkur- og Bergvíkssvæðið hefur verið helst þar í skoðun, við höfum líka skoðað Grundartanga eða einhver svæði sem eru í kringum höfuðborgarsvæðið. Þetta getur ekki verið mjög langt frá höfuðborgarsvæðinu,“ segir Jón Viggó. Gagnrýni á sorpbrennslu hefur lengi snúist um mengun. Jón Viggó segir hins vegar að hér sé verið að horfa til annarrar tækni en margir tengi við slíkar stöðvar og bendir á sambærileg dæmi erlendis. „Brennslutæknin sem við erum að skoða er búin að vera við lýði í þrjátíu til fjörutíu ár. Það er búið að þróa reykhreinsibúnað sem er mjög góður, menn eru oft að byggja þessar brennslur í íbúakjörnum eins og Amagaer Bakke-brennslan í Kaupmannahöfn. Það eru 2-300 metrar í næstu blokk,“ segir hann. Hann nefnir einnig fleiri dæmi frá Evrópu, þar á meðal Renergiu í Sviss þar sem úrgangur er brenndur og nýttur til raforku- og hitaframleiðslu. Búast mætti við að hægt væri að fá 50 megawött úr sorpbrennslu hér á landi. „Þær hafa allar það hlutverk að vera hluti af orkuinnviðum. Þær eru fjarvarmaveiturnar fyrir borgina og hefur gengið mjög vel. Þannig að það er ekki mikið um mengun frá þessu,“ segir Jón Viggó.
Sorpa Orkumál Mest lesið Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Fleiri fréttir „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Sjá meira