Vill nýjan Úkraínuforseta Áróra L Davíðsdóttir skrifar 10. október 2026 20:31 Trump og Selenskí takast á um nýjan samning Bandaríkjanna og Rússlands um útflutning dísilolíu. Myndin er úr safni. AP/Julia Demaree Nikhinson Bandaríkjaforseti virðist ekki hafa brugðist vel við harðri gagnrýni Úkraínuforseta á dísilsamning Bandaríkjamanna og Rússa og telur að tími sé til kominn að Úkraína fái sér nýjan forseta „sem kunni að gera samninga.“
Í gær greindi Trump frá samkomulagi sínu við Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að Rússar hefji þegar í stað útflutning á hundruðum þúsunda tonna af dísilolíu. Volódímír Selenskí Úkraínuforseti brást harðlega við samkomulaginu í gær og sagði kaup á rússneskri dísilolíu vera gjöf til Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta og fjárfestingu í áframhaldandi stríði. Í dag sagði Trump í samtali við fjölmiðla vestanhafs að Selenskí vilji „skapa vandamál fyrir heiminn“ með áframhaldandi árásum Úkraínuhers á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar. Úkraína ætti að fá sér nýjan forseta sem gæti „gert samninga“ og bundið enda á stríðið við Rússa. Trump sagði að Selenskí mætti gera það sem honum sýndist utan þess að ráðast á olíuhreinsunarstöðvar Rússa en það hefði áhrif á olíuverð um heim allan. CNN hefur eftir ónefndum embættismanni að Bandaríkin hafi ítrekað biðlað til Úkraínu um að hætta árásum sínum á rússneskar dílishreinsunarstöðvar án árangurs. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ítrekaði víðtækan stuðning við Úkraínu í færslu á X fyrr í dag. This week has been one of the deadliest for Ukrainian civilians. We reaffirm our comprehensive support to Ukraine, including the expansive use of sanctions to counter Russia’s illegal war and serial violations of its treaty obligations and international law. Justice must prevail.— Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (@thorgkatrin) October 10, 2026 „Þar á meðal umfangsmikla beitingu refsiaðgerða til að sporna gegn ólögmætu stríði Rússlands og ítrekuðum brotum þess á skuldbindingum sínum samkvæmt sáttmálum og alþjóðalögum. Réttlætið verður að sigra,“ skrifaði Þorgerður Katrín. Í morgun gerðu Rússar umfangsmikla árás á úkraínsku borgina Saporíssjía. Tuttugu hið minnsta létust, þar af þrjú börn, og átján til viðbótar særðust, segir í umfjöllun Reuters. Óttast er að fleira fólk kunni að vera fast undir rústum íbúðarhúsa.
Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Rússland Donald Trump Bandaríkin Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Fleiri fréttir Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Ætla að „binda enda“ á stríðsglæpadómstól Skólum lokað eftir árásir og tíu handteknir vegna hótana Helsti herbloggari Rússlands handtekinn í Svartfjallalandi Fjárfesti í SpaceX og hóf svo átak sem gæti hagnast fyrirtækinu Navanethem Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels Bein útsending: Hver hlýtur friðarverðlaun Nóbels? Yfir sjötíu þúsund mótmæltu þrátt fyrir umbótatillögur Veðmál á sigur Navalnaju hrúgast inn Maður skotinn af fulltrúum ICE í New York Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Ætla að streyma aftöku í beinni Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Tveir Lettar handteknir á breskri herstöð í nótt Máttu ekki leita hjá fyrrverandi prinsi vegna Epstein-tengsla Breskur hermaður ákærður fyrir njósnir Hættu við að ræða upplýsingafals undir þrýstingi frá Bandaríkjastjórn Segir í tísku að setja alþjóðasamfélagið ofar eigin þjóð Konan sem var borin út er látin Sjá meira