Erlent

Máttu ekki leita hjá fyrr­verandi prinsi vegna Epstein-tengsla

Kjartan Kjartansson skrifar
Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi prins.
Andrew Mountbatten-Windsor, fyrrverandi prins. AP/Kirsty Wigglesworth

Heimildir sem breska lögreglan fékk til þess að leita á heimili Andrésar, fyrrverandi prins, voru ólögmætar. Dómari segir að lögregla hafi gert alvarleg mistök þegar hún sótti um leitarheimildirnar.

Húsleit var gerð hjá Andrew Mountbatten-Windsor, sem áður gekk undir titlinum Andrés prins, í tengslum við uppljóstranir um tengsl hans við Jeffrey Epstein, bandaríska auðkýfinginn og kynferðisbrotamanninn. Fyrrverandi prinsinn lá undir grun um að hafa deilt trúnaðarupplýsingum ólöglega með Epstein.

Lögmenn hans hafa krafist þess að leitarheimildirnar sem lögregla fékk í febrúar yrðu ógiltar. Dómari í málinu sagði í dag að lögreglan hefði fallist á að heimildirnar hefðu verið ólögmætar.

Einn lögmanna Mountbatten-Windsor segir að niðurstaðan þýði að sönnunargögn sem lögreglan aflaði í leitunum séu spillt og því beri að útiloka þau frá saksókn á hendur honum. Lögregla lagði hald á bæði skjöl og raftæki við húsleitina á tveimur heimilum fyrrverandi prinsins.

Ásakanirnar á hendur Mountbatten-Windsor komu fram eftir að bandaríska dómsmálaráðuneytið birti hluta af gögnum úr rannsókn á Epstein. Karl prins svipti bróður sinn aðalstign vegna þess smánarbletts sem málið setti á konungsfjölskylduna.

Mountbatten-Windsor var upphaflega grunaður um misferli í opinberu embætti vegna upplýsinga sem hann hafði í krafti stöðu sinnar sem viðskiptafulltrúi Bretlands og deildi með Epstein, vini sínum. Lögreglan hefur síðan sagt að rannsókn á honum nái til fleiri mögulegra brota.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×