Erlent

Navanethem Pillay hlaut friðar­verð­laun Nóbels

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
 Navanethem „Navi“ Pillay hlaut friðarverðlaunin.
Navanethem „Navi“ Pillay hlaut friðarverðlaunin. EPA

Norska Nóbelsnefndin tilkynnti rétt í þessu að Navanethem „Navi” Pillay hlaut friðarverðlaun Nóbels.

Pillay hlaut verðlaunin fyrir viðleitni hennar til að efla frið og alþjóðalög auk þess að hafa sýnt fram á mikið hugrekki. Hún hafi af miklum heilindum rutt brautina í átt að heildstæðari alþjóðlegri réttarskipan.

„Verðlaunahafi ársins hefur átt lykilþátt í að tryggja að stríðsglæpir, glæpir gegn mannkyni og þjóðarmorð séu sóttir til saka,“ segir í tilkynningu nefndarinnar.

Pillau er frá Suður-Afríka og fæddist inn í fjölskyldu af indverskum tamílskum uppruna á tímum aðskilnaðarstefnunnar. Hún er menntaður lögmaður og tókst á við kerfisæla mismunun, aðskilnað og útilokun. Til að mynda starfaði hún við að verja Nelson Mandela og aðra sem risu gegn aðskilnaðarstefnunni.

Hún hefur gegnt dómarastörfum við Hæstarétt í Suður-Afríku, Alþjóðlega stríðsglæpadómstóllinn í málefnum Rúanda og Alþjóðlega sakamáladómstóllinn. Hún var einnig mannréttindafulltrúi Sameinuðu þjóðanna og fór fyrir Óháðri alþjóðlegri rannsóknarnefnd SÞ um hernumdu palestínsku svæðin. 

Sýnt var beint frá fundinum hér á Vísi. 

María Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar frá Venesúela, hlaut friðarverðlaun Nóbels í fyrra. Í rökstuðningi nefndarinnar sagði að hún fengi verðlaunin fyrir sleitulausa baráttu sína fyrir lýðræði í Venesúela og að tryggja friðsamleg umskipti til lýðræðis frá einræði í landinu. 

Hún endaði á að gefa Donald Trump Bandaríkjaforseta verðlaunapeninginn en hann hefur ítrekað sagst vilja fá verðlaunin.

Fréttin verður uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×