Ganverjar fá reynslubolta til starfa fyrir HM Ágúst Orri Arnarson skrifar 14. apríl 2026 09:32 Þetta er níunda landsliðsþjálfarastarfið sem Carlos Quieroz tekur að sér. Noushad Thekkayil/NurPhoto via Getty Images Carlos Quieroz verður við stjórnvölinn hjá landsliði Gana á HM í fótbolta í sumar.
Portúgalinn tekur við starfinu af Otto Addo. Hann var látinn fara í síðasta mánuði, því þótt hann hafi stýrt liðinu inn á HM missti Gana af sæti á næsta Afríkumóti og tapaði síðustu fjórum leikjunum undir hans stjórn. Quieroz er orðinn 73 ára gamall og á tæplega fjóra áratugi að baki í þjálfarabransanum. Þekktastur er hann fyrir tíma sinn sem aðalþjálfari Real Madrid og aðstoðarþjálfari Manchester United á árunum 2002-08. Hann hætti hjá Manchester United til að taka við landsliði Portúgal og stýrði liðinu á HM 2010. Hann var síðan landsliðsþjálfari Íran á síðustu þremur heimsmeistaramótum. Frá því að hann fór með Íran á HM 2022 hefur Quieroz þjálfað landslið Katar og nú síðast Óman. Ljóst er að Quieroz á ærið verk fyrir höndum því Gana verður í riðli með Panama, Englandi og Króatíu á HM. Stjörnuleikmaður liðsins er Antoine Semenyo en fleiri stór nöfn má finna þar innanborðs, eins og Thomas Partey, Jordan Ayew, Tariq Lamptey, Mohammed Kudus, og Inaki Williams.
HM 2026 í fótbolta Gana Mest lesið Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Mudryk fær séns til að sanna sig á ný Enski boltinn Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Íslenski boltinn Með fullt hús stiga á leið í úrslitakeppni Handbolti „Það er erfitt að eiga við okkur“ Íslenski boltinn Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Fótbolti „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Íslenski boltinn „Þetta er búið, við erum góðir“ Enski boltinn Fleiri fréttir United ekki lengi þjálfaralaust „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Mudryk fær séns til að sanna sig á ný „Það er erfitt að eiga við okkur“ Infantino boðar neyðarfund Trabzonspor í formlegum viðræðum við Salah „Þetta er búið, við erum góðir“ Dýrust í sögu ensku deildarinnar Sakar Infantino um fjárkúgun Þór - Breiðablik 1-0 | Spyrntu sér frá botninum með sætum sigri Sjáðu Blika klúðra fjórum vítum Þúsundir syrgðu Baresi „Erfiðasta ákvörðun sem ég hef tekið á ferlinum“ Stefán Teitur er nýr fyrirliði Hannover Arsenal nálgast kaup á Guimaraes HM hetjan fékk magnaðar móttökur hjá nýju liði Paredes hleypti öllu aftur í bál og brand Uppgjörið: Breiðablik - Aktobe 1-3| Klúðruðu öllum fjórum vítaspyrnunum Wenger tjáir sig loks: Segist ekkert hafa vitað af áætlunum Infantinos Kristall sá til þess að viðtalið fór aldrei í loftið FIFA segir ekkert til í fréttum af neyðarsímtölum Infantinos til Trumps Metfjöldi nýrra þjálfara Viðurkennir að VAR hafi misst af því þegar leikmaður Brann sýndi puttann Gunnar Vatnhamar sagður á förum frá Víkingi Sjáðu alla dramatíkina á Hlíðarenda Semenyo spenntur fyrir því að starfa undir nýja þjálfaranum Mun Vini fara til Arsenal ef hann semur ekki við Real Madrid? „Vorum miklu betri allan tímann“ „Sigurinn var innan seilingar“ Uppgjörið: Valur - Stjarnan 2-3 | Örvar tryggði langþráðan og mikilvægan sigur Sjá meira