Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Atli Ísleifsson skrifar 14. apríl 2026 14:54 Um sé að ræða mesta magn sem mælst hefur frá upphafi eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni. Myndin er tekin í gosi í apríl á síðasta ári. Vísir/Anton Brink Landris og kvikusöfnun heldur áfram með svipuðu móti og undanfarnar vikur, þar sem innstreymi kviku er hægt en stöðugt. Kvikuhlaup sem gæti leitt til eldgoss er enn talin líklegasta sviðsmyndin.
Þetta kemur fram á vef Veðurstofunnar og segir að samkvæmt líkanreikningum hafi nú um 25 milljón rúmmetrar af kviku safnast fyrir undir Svartsengi frá síðasta eldgosi í júlí á síðasta ári. Um sé að ræða mesta magn sem mælst hefur frá upphafi eldgosa á Sundhnúksgígaröðinni. „Á meðan kvika heldur áfram að safnast fyrir og þrýstingur í kerfinu eykst er líklegasta sviðsmyndin sú að kvikuhlaup fari frá Svartsengi yfir í Sundhnúksgígaröðina, sem gæti leitt til eldgoss. Gera þarf ráð fyrir stuttum fyrirvara, líkt og áður, en hann hefur verið á bilinu 20 mínútur upp í rúmar fjórar klukkustundir. Veðurstofan Skjálftavirkni Skjálftavirkni hefur verið áfram lítil undanfarnar vikur við kvikuganginn, að jafnaði um tveir smáskjálftar á dag. Í gær, þann 13. apríl, mældust þrettán smáskjálftar á um 10 km dýpi í Fagradalsfjalli en ekki hafa mælst yfir þrír skjálftar á dag í fjallinu síðustu mánuði. Hættumat Hættumat Veðurstofunnar er óbreytt og gildir til 30. júní. Sólarhringsvakt Veðurstofunnar fylgist áfram grannt með framvindunni og verður hættumatið uppfært ef breytingar verða á virkninni,“ segir í tilkynningunni.
Eldgos og jarðhræringar Eldgos á Reykjanesskaga Grindavík Mest lesið Bandaríkin hafi samið við Danmörku um Grænland Erlent „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ Innlent Løkke um samninginn: „Næsta vika getur orðið góð vika“ Erlent Íhuga að fara nýja leið og bjóða Rússum viðskiptasamninga Erlent KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ Innlent „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ Innlent „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Innlent Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Innlent „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Innlent Eftirlýstur og með vopn á sér Innlent Fleiri fréttir Danir sigurvegarar og ofurfólk í Heiðmörk Má heita Himbrimi og Aðalsól en ekki Kamban eða Heiðarr Eftirlýstur og með vopn á sér „Þetta er örugglega dauðastríð sem tekur langan tíma“ „Það var bara blankalogn hjá þeim og þeir voru með óvirka vél“ Sjö um borð þegar bíll valt á Barðastrandarvegi „Við höfum iðulega verið tossinn í bekknum“ KR-ingar harma sundátökin: „Mikilvægt að við hlúum hvert að öðru“ „Ég þekkti strax höfuðið á henni úr fjarska“ Steinhissa á sjö ára kröfu yfir „burðardýrum“ Undirrituðu viljayfirlýsingu um stækkun VMA Segja kröfulista Icelandair tefja samninga Carlsberg og Kamala komu við sögu í málsvörnum Sundþjálfari KR með hníf á lofti fyrir lykilfund sundfólks Ölvunarakstur ungmenna nálgast sögulegt hámark Fara fram á sjö og átta ár í Dettifossmálinu Fundi lokið án árangurs fimm dögum fyrir verkfall flugvirkja Viðar Örn gaf Sævari Louis Vuitton-tösku Miklar áhyggjur af þekkingunni sem glatist með starfslokunum Moskítóflugan virðist hafa gufað upp Enginn með stöðu sakbornings vegna banaslyssins Játar innbrot í búin Reyna að afstýra verkfalli og moskítóflugan horfin Níu ákærðir fyrir að flytja inn rúm hundrað kíló kókaíns „Er þetta ekki komið út í hártoganir?“ Lífsnauðsynlegt að meðhöndla risarækjur líkt og kjúkling Ríkissjóður gæti tekið yfir skuldir Rúv: „Skattgreiðendur borga reikning sem þeir áttu ekki von á“ Útlit fyrir úrkomubakka og þokuloft Vill þyngri refsingu fyrir Margréti Löf Fundað í flugvirkjadeilu Sjá meira