Einkunnir Íslands: Fyrirliðinn best í kvöld Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 14. apríl 2026 21:33 Stelpurnar okkar. Pawel Cieslikiewicz Íslenska kvennalandsliðið sigraði Úkraínu 1-0 í undankeppni HM í kvöld. Ísland stjórnaði leiknum nánast allan leikinn en það sem vantaði voru mörk.
Eftir töluvert af færum í fyrri hálfleik sem ekki tókst að nýta setti Alexandra Jóhannsdóttir boltann í netið með laglegum skalla á 47. mínútu. Stelpurnar okkar voru sterkari aðilinn allan leikinn og átti marga góða sóknarkafla. Ísland sótti vel á mark gestanna en tókst þó ekki að bæta við fleiri mörkum. Einkunnir Íslands í leiknum: Cecilía Rán Rúnarsdóttir, markvörður [7] Örugg í sínum aðgerðum í markinu. Varði stórkostlega ein á móti Roksolana Kravchuk sem fékk auða flugbraut að marki Íslands. Að öðru leyti var lítið að gera í markinu. Sædís Rún Heiðarsdóttir, vinstri bakvörður [7] Lítið að gera varnarlega fyrir Sædísi í dag en stóð vaktina sína af prýði. Ingibjörg Sigurðardóttir, miðvörður [6] Það var svo sem ekki mikið að gera fyrir varnarlínu Íslands en skilaði sínu vel í dag. Glódis Perla Viggósdóttir, miðvörður (fyrirliði) [8] Glódís var allt í öllu hvort sem það var í vörninni eða sókninni.Pawel Cieslikiewicz Leiðtoginn okkar í landsliðinu átti góða frammistöðu í dag. Hvort sem það var í hjarta varnarinnar eða í sókninni. Átti stoðsendinguna í markinu og var nálægt því að skora sjálf. Guðrún Arnardóttir, hægri bakvörður [6] Lítið að gera fyrir varnarmenn liðsins í kvöld en átti góða kafla og skilaði sínu. Hildur Antonsdóttir, miðjumaður [6] Lék vel á miðsvæðinu og skilaði sínu. Alexandra Jóhannsdóttir, miðjumaður [8] Spræk sóknarlega á miðjunni og skoraði fyrsta mark Íslands í leiknum. Átti skalla seint í síðari hálfleik sem gestunum tókst að verja á línunni. Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, miðjumaður [7] Sá um föstu leikatriðin og gerði það vel. Iðinn í sínu fagi og skilaði sínu. Sveindís Jane Jónsdóttir, vinstri kantur [7] Alltaf hætta hjá Sveindísi þegar hún tekur löng innköst. Eitt slíkt skilaði okkur góðu marki í dag. Thelma Karen Pálmadóttir, hægri kantur [7] Nýliðinn var mætt í byrjunarliðið og heillaði í dag með hraða sínum á kantinum.Pawel Cieslikiewicz Gaman að sjá Thelmu takast á við það verkefni að vera í byrjunarliðinu í kvöld. Engin skjálfti og virtist bara klár í verkefnið. Gerði vel í nokkur skipti á hægri kantinum og bara spennandi að fylgjast með henni í landsliðstreyjunni. Sandra María Jessen, framherji [7] Virkilega spræk í fremstu línu og dugleg að ógna marki gestanna. Varamenn Hlín Eiríksdóttir kom inn fyrir Thelmu Karen Pálmadóttur á 65. mínútu [6] Náði fínu skoti en tókst ekki að setja mark sitt á leikinn. Linda Líf Boama kom inn fyrir Söndru Maríu Jessen á 65. mínútu [6] Náði ekki alveg að koma sér inn í leikinn í fremstu línunni. Emilía Ásgeirsdóttir kom inn fyrir Karólínu Leu Vilhjálmsdóttur á 75. mínútu [6] Kom spræk inn á völlinn og sýndi að hún getur haldið boltanum vel. Náði hins vegar ekki að skapa nein hættuleg færi. Ída Marín Hermannsdóttir kom inn fyrir Hildi Antonsdóttir á 83. mínútu [] Spilaði ekki nóg til að fá einkunn.
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Fótbolti Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Sport Figo hraunar yfir Infantino Fótbolti Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Fótbolti Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Íslenski boltinn Salah mættur til Tyrklands Fótbolti Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Fótbolti Infantino boðar neyðarfund Fótbolti United ekki lengi þjálfaralaust Enski boltinn Fór á fyllerí og missti fyrirliðastöðuna Sport Fleiri fréttir Brann tapaði en AGF vann liðið sem lenti í umferðteppu Tryggðu sigurinn eftir að Emelía kom inn á völlinn FH - KR | Svarthvítur slagur í Krikanum Konan sem á að rífa upp gengi Manchester United Como með mjög strangar miðareglur en hlífa börnunum Keflavík - KA | Fyrsti leikur eftir slagsmálin Infantino vill skipta við Marokkó á stuðningi við sig og úrslitaleik HM Margfaldir meistarar fóru í hlutverk kylfusveina fyrir Íslandsmótið Lukaku lætur ekki sjá sig Stjarnan tekur efnilegan leikmann frá Álftanesi Sneru leiknum á síðustu stundu og komust áfram Völlurinn fyrir Íslandsmótið slær í gegn: „Eins og þegar ég var lítil“ Neymar „hagaði sér eins og trúður“ Alcaraz dregur sig aftur úr keppni Chelsea tapaði fyrsta leik Mudryks í tvö ár Figo hraunar yfir Infantino Hlín vann systraslaginn Real nálgast samkomulag um Diomandé Salah mættur til Tyrklands Seldur fyrir metverð og mætir ekki Val Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum Fór grátandi af velli Diljá með tvennu í öruggum Evrópusigri Umdeildasti maður sumarsins orðaður við Tottenham FH fær danskan framherja Æfir blindandi og skýtur á eigandann Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn Liverpool vill að minnsta kosti tvo leikmenn PSG Skoða hvort keppendur séu að stækka brjóstin með púðum Dagskráin í dag: Svarthvítur slagur og Stúkan Sjá meira