Sport

„Skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leik­mönnum í heimi“

Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar
Þorsteinn vill sjá alvöru mætingu á laugardaginn næstkomandi.
Þorsteinn vill sjá alvöru mætingu á laugardaginn næstkomandi. Vísir/Getty

Ísland vann gríðarlega mikilvægan 1-0 sigur gegn Úkraínu í undankeppni HM í kvöld. Næsti leikur liðsins er gegn Englandi næstkomandi laugardag og finnst Þorsteini Halldórssyni, þjálfara íslenska kvennalandsliðsins, skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu fótboltamönnum í heimi.

„Þetta var mikilvægur sigur og mér fannst við fín í kvöld. Við sköpuðum slatta af færum og vorum ógnandi í föstum leikatriðum,“ sagði Þorsteinn eftir leikinn.

Íslenska liðið stjórnaði leiknum frá a til ö og ef Úkraína fékk eitthver tækifæri sem voru af skornum skammti var það vegna eigin mistaka. Þrátt fyrir töluvert af sköpuðum færum tókst liðinu bara einu sinni að koma boltanum í netið.

„Þær eru góðar í að verja markið og þær eru fljótar að koma sér niður. Það er ekkert auðvelt að fá dauðafæri á móti þeim. Manni hefði liðið betur eftir því sem leið á leikinn að vera 2-0 yfir og vera með þessa stjórn á leiknum.“

„Ég stillti upp hröðum leikmönnum fremst til að nýta okkur aðstæður. Það tókst ágætlega, þær áttu í basli með þær þegar þær komust á ferðina. Það var svolítið hugmyndin með þetta að vera með þrjár fljótar þarna frammi þannig að það yrði erfitt að deala við okkur í stöðunni einn á einn.“

Næsti leikur liðsins er gegn Englandi næstkomandi laugardag kl 16:30 á Laugardalsvelli.

„Við þurfum að njóta sigursins í kvöld og njóta þess að hafa tekið þessi þrjú stig. Síðan þegar við vöknum í fyrramálið þá byrjum við að undirbúa okkur fyrir England.“

1463 áhorfendur gerðu sér ferð á leikinn og heyrðist í rauninni vel í þeim allan leikinn.

„Þeir áhorfendur sem mættu voru frábærir og skipta okkur máli. Ef ég á að vera hreinskilinn þá eru það smá vonbrigði gagnvart því að liðið er búið að vera meðal þeirra bestu síðustu fimm til sex ár. Við náum eitthvernveginn aldrei eitthverjum fjölda á völlinn.“

England á eitt af bestu kvennalandsliðum í heimi og stóð liðið upp sem Evrópumeistarar árið 2025. Enska liðið sigraði stelpurnar okkar 2-0 í mars á þessu ári í Englandi þar sem rúmlega 27.000 stuðningsmenn mættu á leikinn.

„England er að koma hérna á laugardaginn. Mér finnst það bara skrítið ef fólk mætir ekki að horfa á nokkra af bestu leikmönnum í heimi. Það væri skrítið ef það myndu ekki mæta fleiri en mættu í dag.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×