Gert að greiða miskabætur eftir að hafa nauðgað táningsstúlku Atli Ísleifsson skrifar 15. apríl 2026 08:58 Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í einkamálinu. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt mann, sem áður hafði hlotið tveggja ára fangelsisdóm fyrir að nauðga táningsstúlku sem tengist honum fjölskylduböndum sumarið 2019, til að greiða brotaþola 2,25 milljónir króna í miskabætur.
Konan höfðaði einkamál gegn manninum í kjölfar hæstaréttardóms og fór þar fram á greiðslu fjögurra milljóna króna í miskabætur. Maðurinn var upphaflega sýknaður af ákærunni í héraði en Landsréttur sneri við dómnum í mars á síðasta ári þar sem hann var dæmdur í tveggja ára fangelsi en stærstur hluti refsingarinnar var skilorðsbundinn. Hæstiréttur staðfesti svo dóm Landsréttar fyrr á þessu ári og höfðaði konan svo sérstakt einkamál vegna bótakröfunnar. Beitti hana ólögmætri nauðung Í gögnum málsins kom fram að í aðdraganda brotsins hafi stúlkan og maðurinn verið að djamma saman í miðbæ Reykjavíkur, ásamt öðrum, en endað í eftirpartýi heima hjá honum. Manninum var gefið að sök að hafa á heimili sínu, nánar tiltekið í hjónaherbergi hússins, stungið fingri í leggöng stúlkunnar á meðan hún svaf og haldið því áfram eftir að hún vaknaði. Þá hafi hann fært sig ofan á hana, látið hana fróa honum og haft samræði við hana gegn hennar vilja. Í ákærunni sagði að hann hafi notfært sér að hún gæti ekki spornað við verknaðinum vegna áhrifa áfengis og svefndrunga. Var hann sagður hafa beitt hana ólögmætri nauðung með því að nýta sér yfirburði sína og traust hennar, vegna náinna fjölskyldutengsla. Hún upplifi mikinn kvíða og óöryggi og hafi margoft endurupplifað atburðinn. Auk þess fái hún kvíðahnút þegar hún eigi leið hjá íbúðahverfi mannsins og þá hafi atburðurinn haft mikil áhrif á skólagöngu hennar og félagslega stöðu. Alvarleg neikvæð áhrif Í niðurstöðukafla dómsins segir að dómurinn telji að um hafi verið gróf kynferðisbrot og fjölskyldutengslin hafi aukið á grófleikann. Af gögnum málsins megi ljóst vera að brotin hafi haft alvarleg neikvæð áhrif á stefnanda og valdið henni mikilli röskun. Mat dómarinn hæfilega upphæð miskabóta vera 2,25 milljónir króna. Dómari í málinu dæmdi jafnframt manninn til að greiða 250 þúsund krónur í málskostnað.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Mest lesið Verja fúlgum fjár í að hafa upp á þeim sem gagnrýna ICE á netinu Erlent Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Innlent Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Innlent Ítrekað hjólað á móti umferð Innlent „Hverjir eru á bak við það?“ Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Innlent Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Innlent Von á lægðarsvæði í átt að landinu úr suðvestri Veður Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Innlent Fleiri fréttir Reyndust báðir vopnaðir, annar hamri og hinn öxi Segir lögreglu skrumskæla gamansöm ummæli Landsmönnum fjölgaði um 1.450 á öðrum ársfjórðungi Ítrekað hjólað á móti umferð Marktækur munur á fylgi Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks Skipverjar gangi örna sinna í vaska og lögmaðurinn fullur Meirihluti telur vexti lækka en undanþágu í sjávarútvegi ólíklega Ný ESB-könnun, skipverjar Bandero og óþarfa hætta á Hverfisgötu Skipverjarnir mega allir fara frá borði Næturborun í sjó lokið og verktakar þakka íbúum þolinmæðina Minnst einn skipverji Bandero má fara frá borði „Við látum ekki fæla okkur aftur inn í skápinn“ „Við erum svolítið strand“ Útsýnispallurinn talinn öruggur þrátt fyrir sprungur Slökktu eld í jepplingi á „örskotsstund“ Ruglingslegar og misvísandi frásagnir um fjóra til fimmtán árásarmenn Engir minkar hafi ratað í gildrur síðustu sólarhringa „Ekki skemmtilegt fyrir starfsfólk“ Gríðarlegur fjöldi fyrir norðan og mikil óþolinmæði á heimleið Kólumbíumenn í haldi og skipverjar Bandero bíða örlaga sinna Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Heimir Hannesson er látinn Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Skipar nýja bótanefnd Vill breyta lögum um .is Enn eitt innbrotið í miðbænum Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Lögreglan lýsti eftir manni en hann er fundinn Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Sjá meira