Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Stefán Árni Pálsson skrifar 15. apríl 2026 11:01 Guðríður er sátt við útkomuna. Þjálfarinn Guðríður Erla Torfadóttir, sem alla jafna einbeitir sér að því að halda viðskiptavinum sínum í góðu líkamlegu formi, beindi kastljósinu að sjálfri sér í ársbyrjun og fór í langþráða svuntuaðgerð. Ákvörðunina um aðgerð tók Gurrý þegar hún var 28 ára en ákvað að bíða þar til hún væri búin að koma þremur sonum sínum til manns. Nú, 46 ára og í toppformi, er Gurrý stolt, sátt og spennt fyrir framhaldinu.
Gurrý varð þjóðþekkt í raunveruleikaþáttunum Biggest Loser, Ísland, sem hófu göngu sína árið 2014. En þar gerði hún sitt besta til að hjálpa keppendum að hreyfa sig og létta. Allar götur síðan hefur hún starfað sem þjálfari og leggur mikla áherslu á heilsusamlegan lífsstíl. En þrátt fyrir stífar æfingar og hollt mataræði hefur fólk í toppformi ekki, frekar en nokkur annar, fulla stjórn á stærsta líffæri líkamans, húðinni. Eignaðist sitt fyrsta barn sautján ára „Þetta var ákvörðun sem var tekin á löngum tíma. En svona til þess að gefa kannski smá baksögu þá varð ég 17 ára þegar ég varð ólétt að fyrsta barninu mínu og þegar maður er 17 ára, þá er maður náttúrulega ekki orðinn fullorðinn. Ég upplifði smá sorg yfir því hvað líkami minn breyttist ótrúlega mikið. Ég slitnaði mikið á maganum og á fleiri stöðum. Svo þegar ég er búin að eiga þá fer ég bara á fullt í ræktina og það er eiginlega svona upphafið að því sem ég er að gera í dag, að þjálfa konur. Þannig að ég fer bara að æfa og er mjög svona ákveðin í því,“ segir Gurrý sem var þarna staðráðin í því að fá líkama sinn til baka. Hödd Vilhjálms hitti Gurrý á sínum heimavelli. „Svo gekk ég með tvö börn í viðbót. Þannig að 28 ára er ég komin með þrjá stráka, heilbrigða stráka sem ég er bara ótrúlega þakklát fyrir. En ég var alltaf svekkt yfir því hvernig maginn á mér var, slitin og laus húð. Ég er að vinna sem þjálfari og ég er búin að gera 400.000 kviðæfingar og þetta er ekki að fara að lagast. Ég get ekki lagað lausa húð, ég get styrkt kviðvöðvana og þeir voru bara mjög sterkir. Þarna 28 ára tek ég ákvörðun um að ég ætlaði að láta laga þetta einn daginn en ekki strax, ekki á meðan strákarnir mínir eru litlir af því að ég var bara hrædd við að fara í aðgerðina.“ Hún segir að það fylgi alltaf ákveðin áhætta öllum aðgerðum og því hafi hún ákveðið að bíða með aðgerðina. Er að verða hundrað prósent „Svo bara líður tíminn og svo bara núna er ég orðin 46 ára og núna er ég tilbúin. Ég ætla að gera þetta fyrir mig, að láta taka þessa lausu húð og slit,“ segir Gurrý en núna eru þrír mánuðir liðnir frá því að hún fór í aðgerðina. „Í dag líður mér bara mjög vel. Þetta er alveg langt bataferli og ég myndi segja að það væri komið svona 90%. Ég er smá bólgin hérna neðst en annars lítur þetta bara ótrúlega vel út og bataferlið er búið að ganga mjög vel. Þannig að núna er ég farin að gera bara 80-90% af því sem ég var að gera áður en ég fór í aðgerðina. Enda er ég búin að hugsa vel um mig og þetta er búið að vera erfitt. Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt. Þú labbar inn í aðgerð og þér líður bara vel og svo kemurðu út og þú getur ekki gert neitt,“ segir Gurrý en hér að neðan má sjá innslagið í heild sinni þar sem þjálfarinn fer ítarlega yfir ferlið allt.
Ísland í dag Lýtalækningar Líkamsræktarstöðvar Ástin og lífið Mest lesið „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Lífið Fresta öðrum tónleikum sínum hérlendis vegna óvænts fráfalls ástvinar Tónlist „Þú ætlar ekki að verða feilaður rappari“ besta mantran Tónlist Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Lífið „Maður getur varla beðið um meira“ Lífið Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Lífið Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lífið Bakaríið í beinni útsendingu Lífið Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Lífið Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Lífið Fleiri fréttir Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Korter í fæðingarþunglyndi en fór út að hlaupa viku eftir fæðingu Spurt var um dýr með það harðan skjöld að byssukúlurnar fljúga af þeim Ekkert náð að æfa sig en ætlar að kýla á Bakgarðshlaupið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Sjá meira