Viðsnúningur í rekstri, hver borgar? Stefán Þór Eysteinsson og Hjördís Helga Seljan skrifa 15. apríl 2026 17:02 Mikið hefur verið rætt um fjármál Fjarðabyggðar undanfarið og það er vissulega gleðiefni að rekstrarniðurstaða A-hluta sé jákvæð, þrátt fyrir lakari afkomu en áætlað var. En það er rétt að spyrja: hvað liggur í raun að baki þessum „bætta“ rekstri sveitarfélagsins? Í grunninn skýrist hann af hærri skatttekjum, hærri framlögum úr jöfnunarsjóði og lægri fjármagnskostnaði. Auknar tekjur og framlög Frá árinu 2021 til ársins 2025 hafa tekjur Fjarðabyggðar vaxið um 43% og þar vega skatttekjur og framlög úr jöfnunarsjóði þyngst. Skatttekjur Fjarðabyggðar byggja á útsvari íbúa og fasteignagjöldum þeirra sem eiga fasteignir í sveitarfélaginu. Þegar tekjur íbúa hækka aukast tekjur sveitarfélagsins óumflýjanlega líka. Fjarðabyggð státar af öflugu atvinnulífi og meðaltekjur íbúa eru með þeim hæstu á landinu. Það skilar sér beint í reksturinn. Á sama tíma hafa framlög úr jöfnunarsjóði hækkað verulega, ekki síst vegna þess að nú er meira tekið tillit til þess að Fjarðabyggð er fjölkjarna sveitarfélag. Framlögin jukust um 374 milljónir króna milli áranna 2024 og 2025 og hafa hækkað um 823 milljónir frá árinu 2022. Það munar um minna. Ytri aðstæður og lækkun gjalda Ytri efnahagslegar aðstæður hafa líka skipt máli. Verðbólga var mjög há árin 2022 og 2023 en lækkaði árin 2024 og 2025. Hvers vegna skiptir það máli? Jú, skuldir sveitarfélagsins eru að mestu verðtryggðar og hærri verðbólga þýðir að höfuðstóll lána hækkar og þar með greiðslubyrðin. Lægri verðbólga þýðir lægri afborganir. Afborganir voru til dæmis 156 milljónum króna lægri en árið 2023. Þetta skiptir máli vegna þess að jákvæð rekstrarniðurstaða segir ekki alla söguna. Hún sýnir ekki endilega að grunnreksturinn hafi verið endurskipulagður eða að forgangsröðun hafi batnað. Hún endurspeglar líka auknar tekjur og hagstæðari ytri skilyrði. Skuldir og framkvæmdir Nánast engar lántökur voru teknar hjá bönkum og lánastofnunum árin 2024 og 2025 hjá sveitarfélaginu í heild. A-hlutinn hefur engu að síður þurft að sækja sér fjármagn til fyrirtækja í B-hluta, einkum Hafnarsjóðs, til að fjármagna sig. Það nam tæpum 200 milljónum króna árið 2025 og 460 milljónum króna árið 2024. Áhyggjuefnin Mikilvægt er að sýna ábyrgð í rekstri þrátt fyrir auknar tekjur. Flestar fjárfestingar ársins í A-hluta fóru fram úr áætlunum. Launakostnaður hækkaði um 560 milljónir króna milli ára, þótt hann hafi verið undir áætlun. Það skýrist að verulegu leyti af lausum stöðugildum. Þá vaknar eðlileg spurning: eru verkefni ekki unnin, eða er álagið orðið of mikið á það starfsfólk sem er fyrir? Samhliða þessu hefur kostnaður vegna aðkeyptrar verktöku aukist. Ef sveitarfélagið nær ekki að manna störf og þarf þess í stað að kaupa þjónustu utan frá, hverfur fljótt sá „sparnaður“ sem birtist í lægri launakostnaði en áætlað var. Það er ekki sjálfbært til lengdar. Við erum að reka samfélag Rekstrargrunnur sveitarfélagsins er sterkur og sá styrkleiki hefur ítrekað sýnt sig í jákvæðri rekstrarniðurstöðu samstæðunnar allt kjörtímabilið. Rekstur sveitarfélagsins þarf að sjálfsögðu að byggja á ábyrgri nýtingu sameiginlegra fjármuna. En við erum ekki að reka fyrirtæki. Við erum að reka samfélag. Þess vegna þarf leiðarljós sveitarfélagsins að vera ekki bara að halda rekstrinum jákvæðum, heldur að tryggja jöfnuð, velferð og sanngjarna þjónustu fyrir íbúa um alla Fjarðabyggð. Þar liggur hin raunverulega ábyrgð. Samfylkingin og annað félagshyggjufólk mun leggja áherslu á einmitt þau gildi: jöfnuð milli bæjarkjarna og sveitarfélag sem vinnur með íbúum og fyrir íbúa. Höfundar eru bæjarfulltrúar Fjarðalistans. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Fjarðabyggð Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar