Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 16. apríl 2026 09:03 Viðvarandi mikið atvinnuleysi hefur víða verið veruleikinn innan Evrópusambandsins á liðnum árum og áratugum og það jafnvel á uppgangstímum í heiminum. Þetta hefur verið ein birtingarmynd þeirrar efnahagslegu stöðnun sem ríkt hefur þar. Önnur birtingarmynd þessa ástands hefur verið skortur á hagvexti og framleiðni. Enn ein birtingarmyndin hefur verið lágir stýrivextir seðlabanka sambandsins sem ætlað hefur verið a reyna að koma efnahagsmálunum í gang en með litlum sem engum árangri. Stöðnun felur vissulega í sér ákveðinn stöðugleika en hins vegar ekki sérlega eftirsóknarverðan. Við hæfi er að hafa þetta í huga við lestur greinar Þorvalds Inga Jónssonar, viðskiptafræðings og stjórnarmanns í öldungaráði Viðreisnar, á Vísi á dögunum þar sem hann gagnrýndi andstöðu Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, við inngöngu Íslands í Evrópusambandið. Þorvaldi var einmitt tíðrætt um hinn svokallaða stöðugleika innan sambandsins sem eins og áður segir heitir réttu nafni efnahagsleg stöðnun. Fjallað hefur meðal annars verið um þetta grafalvarlega ástand í skýrslum sem unnar hafa verið fyrir Evrópusambandið meðal annars af Mario Draghi, fyrrverandi seðlabankastjóra þess. Tal Þorvaldar um meint aukið atvinnuöryggi vegna minni gengissveifla með inngöngu í Evrópusambandið og upptöku evrunnar (það er að segja aðeins gagnvart evrusvæðinu) er rétt að skoða í því ljósi að fastgengisstefna, sem þau skref fælu í sér, eyðir ekki mögulegum gengissveiflum heldur leita þær þess í stað einfaldlega annað. Yfirleitt einkum í atvinnustigið með auknu atvinnuleysi einkum vegna minni sveigjanleika. Hafa má einnig í huga í þeim efnum að það er ekki að ástæðulausu að fjöldi erlendra ríkisborgara frá ríkjum innan sambandsins hefur komið hingað til lands í atvinnuleit á liðnum árum. Vinnumarkaðskerfi Íslands er sterkt sagði Þorvaldur í greininni og að það ætti að verja. Það væri þó ekki einstakt í Evrópu enda hefðu Norðurlöndin hliðstæð kerfi. Danmörk og Svíþjóð hafa einmitt þurft að verja sín kerfi – fyrir Evrópusambandinu! Með misjöfnum árangri. Árið 2022 setti sambandið til að mynda tilskipun um lágmarkslaun þrátt fyrir mótmæli danskra og sænskra stjórnvalda sem og þarlendra verkalýðshreyfinga sem sögðu hana til þess fallna að grafa undan vinnumarkaðskerfum þeirra þar sem samið væri um laun og kjör á milli aðila vinnumarkaðarins án slíkra beinna afskipta stjórnvalda. Danir og Svíar gátu ekki komið í veg fyrir að tilskipunin væri sett og fóru dönsk stjórnvöld með málið fyrir dómstól Evrópusambandsins með stuðningi sænskra ráðamanna og kröfðust þess að tilskipunin yrði felld úr gildi. Dómstóllinn hafnaði þeirri kröfu hins vegar í nóvember síðastliðinum og féllst aðeins á það í tilfelli tveggja atriða í henni. Vægi ríkja þegar kemur að ákvörðunum innan sambandsins fer fyrst og fremst eftir íbúafjölda þeirra. Vægi Dana og Svía er þannig margfalt á við það sem yrði í tilfelli Íslands. Við yrðum einfaldlega ekki í bílstjórasætinu lengur í þessu frekar öðru innan þess. Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum) og heldur úti vefsíðunni Stjornmalin.is. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen Skoðun Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson Skoðun Skoðun Skoðun Lögreglu-Ríkið Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Þarf einhverja yfirbyggingu í skólamálum Mosfellsbæjar? Haukur Skúlason skrifar Skoðun Verkin tala! Kristinn Jakobsson skrifar Skoðun Vandinn er ekki lóðaskortur Óli Örn Eiríksson skrifar Skoðun Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar Skoðun Er fagmennska kennara einskis virði? Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Að þora að vera til fyrirmyndar Trausti Jóhannsson skrifar Skoðun Orkan sem skapar verðmæti Sævar Freyr Þráinsson skrifar Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Eru 700 milljónir á ári ekki miklir peningar? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Ertu ekki hress? Sigurbjörg J. Helgadóttir skrifar Skoðun Tölum um samfélagið okkar Jónína Margrét Sigmundsdóttir skrifar Skoðun Umferðin vex í Hafnarfirði – hvað ætlum við að gera öðruvísi? Stefán Már Víðisson skrifar Skoðun Listin að blekkja heila þjóð Halldóra Mogensen skrifar Skoðun Hagsmunir launafólks og Evrópusambandið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Rjúfum vítahring olíunnar Guðjón Hugberg Björnsson skrifar Skoðun Dómar eiga að hafa tilgang Védís Einarsdóttir skrifar Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar Skoðun Mannréttindi í hættu í yfirfullum fangelsum Tinna Eyberg Örlygsdóttir skrifar Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stóra sósíalíska skinkumálið Helgi Áss Grétarsson skrifar Skoðun Slapp lifandi út af elliheimili Margrét Sigríður Guðmundsdóttir skrifar Skoðun ADHD og hvatvísi Hjördís María Karlsdóttir skrifar Skoðun Getum við raunverulega skipulagt borgina? Darío Nunez Salazar skrifar Skoðun Ábyrgt fólk segir satt og rétt frá Gunnsteinn R. Ómarsson skrifar Skoðun Jafnrétti í litlu samfélagi: Áskoranir og ábyrgð Guðný Sara Birgisdóttir skrifar Skoðun Fjárfesting í hvíld skilar sér í meiri framleiðni Ellen Calmon skrifar Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Við stöndum vörð um Múlaþing Jónína Brynjólfsdóttir,Eiður Ragnarsson skrifar Sjá meira
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun
Skoðun Er staða Garðabæjar jafn sterk og við höldum? Tinna Borg Arnfinnsdóttir ,Hreiðar Jónsson skrifar
Skoðun Er Kristrún Frostadóttir viljandi að reyna að leiða þjóðina inn í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Vandamál leikskólanna verða ekki leyst nema með aðkomu ríkisins Hans Alexander Margrétarson Hansen skrifar
Skoðun Ný matarstefna Reykjavíkurborgar – hvað skiptir raunverulega máli? Anna Sigríður Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Mataræði stéttaskiptingarinnar: Þegar hollusta verður forréttindi Steinar Björgvinsson skrifar
Strætisvagni ekið á 150 km hraða í gegnum íbúðarhverfi við grunnskóla - „Stórkostlegt sjónarspil“ Haukur Magnússon,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir Skoðun