Körfubolti

Curry hélt stríðsmönnunum á lífi

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Steph Curry átti stórkostlegan seinni hálfleik í útsláttarleiknum.
Steph Curry átti stórkostlegan seinni hálfleik í útsláttarleiknum. Ronald Martinez/Getty Images

Eftir slakan fyrri hálfleik steig Stephen Curry vel upp í seinni hálfleik fyrir Golden State Warriors í dramatískum 126-121 sigri gegn LA Clippers í nótt. Stríðsmennirnir halda því áfram í næstu umferð umspilsins í NBA deildinni en skipverjarnir eru úr leik.

Curry var aðeins með 8 stig í fyrri hálfleik en skoraði 27 stig í seinni hálfleik, þar af 16 stig á aðeins sex mínútum í þriðja leikhluta.

Al Horford átti síðan frábæran sprett í fjórða leikhluta. Miðherjinn hitti úr fjórum skotum fyrir aftan þriggja stiga línuna í endurkomu Warriors.

Curry kom Warriors síðan í forystu með þriggja stiga skoti þegar tæp mínúta var eftir, en í upphafi leikhlutans höfðu Clippers leitt með þrettán stigum.

Kawhi Leonard mátti sín lítils fyrir Clippers og skoraði ekki í fjórða leikhluta fyrr en sextán sekúndur voru eftir, en þá var orðið of seint og Warriors sigldu sigrinum í höfn.

Warriors munu ferðast til Phoenix og mæta liði Suns í úrslitaleik um sæti í úrslitakeppninni. Sigurvegarinn úr þeim leik mætir svo deildarmeisturum Oklahoma City Thunder í átta liða úrslitum.

Clippers munu hins vegar missa af úrslitakeppninni, þrátt fyrir að hafa tekist fimmtánda tímabilið í röð að enda með jákvætt sigurhlutfall.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×