Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Árni Sæberg skrifar 16. apríl 2026 09:50 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion, og Ármann Þorvaldsson, bankastjóri Kviku. vísir Gengi hlutabréfa í Kviku banka lækkaði um 11 prósent í fyrstu viðskiptum dagsins. Tilkynnt var um slit samrunaviðræðna Kviku og Arion banka eftir lokun markaða í gær. Tíðindin virðast hafa minni áhrif á gengi Arion, enda hækkaði gengi bréfa í bankanum um 0,5 prósent í fyrstu viðskiptum.
Stjórnir bankanna tveggja tilkynntu snemma í gærkvöldi að ekkert yrði af fyrirhuguðum samruna þeirra. Í tilkynningum var ástæða viðræðuslitanna rakin til Samkeppniseftirlitsins. „Í ljósi þeirrar afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem fram kom á fundinum telja stjórnir Kviku banka og Arion banka að ekki geti orðið af samruna félaganna. Stjórnir bankanna hafa því fallið frá samrunaáformum sem upplýst var um í tilkynningu til kauphallar þann 6. júlí 2025.“ Hlutabréfaverð Kviku hækkaði um tíu prósent eftir að tilkynnt var um að Arion banki og Íslandsbanki hefðu báðir óskað eftir samrunaviðræðum við bankann og aftur um fjögur prósent þegar tilkynnt var að Kvika hefði samþykkt að ganga til viðræðna við Arion. Því ætti ekki að koma á óvart að tíðindi gærdagsins hafi komið illa við fjárfesta í Kviku en í fyrstu viðskiptum lækkaði gengi bréfa bankans um 11 prósent. Gengi Arion banka hækkaði aftur á móti um 0,5 prósent í fyrstu viðskiptum. Vert er að taka fram að fyrir opnun markaða í morgun birti bankinn samantekt á spám tíu greiningaraðila um afkomu bankans á fyrsta ársfjórðungi, sem gæti hafa haft áhrif á gengið.
Kvika banki Arion banki Fjármálamarkaðir Fjármálafyrirtæki Mest lesið Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Viðskipti innlent Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Neytendur Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Viðskipti innlent Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Viðskipti innlent Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Viðskipti innlent eBay greiðir hjónum sex milljarða eftir hrottalega áreitni Viðskipti erlent Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Viðskipti innlent Opnun Costco á Íslandi frestast Viðskipti innlent Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Neytendur Situr einn Íslendinga eftir á lista Forbes Viðskipti innlent Fleiri fréttir Opna þriðju verslunina í Kaupmannahöfn Oculis tekur kipp í örviðskiptum eftir tilkynningu Fyrrverandi forstjóri Play í landeldið Framkvæmdastjórinn heldur frídag verslunarmanna heilagan Fullveldið ekki bundið við sjálfstæðan gjaldmiðil Tvírukkaðar færslur leiðréttar Niceair horfir til Evrópu eftir brösuga byrjun Ekki erfitt að skila hagnaði í gósentíð hávaxtaumhverfis Á að greiða arfinn inn á húsnæðislánið eða leggja inn á reikning? Rúmlega fimmtán milljarða hagnaður Rúmlega sex hundruð milljónir í starfsmannabónusa Samkeppniseftirlitið leggur blessun sína yfir samruna Brims og Lýsis Bæta við sex nýjum Airbus-vélum María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sjá meira