Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Árni Sæberg skrifar 16. apríl 2026 12:00 Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku. Kvika Forstjóri Kviku banka segir Samkeppniseftirlitið útiloka samruna bankans við stærra fjármálafyrirtæki, þar sem hann sé of samkeppnislega mikilvægur. Því verður ekkert af boðuðum samruna við Arion banka.
Stjórnir Arion banka og Kviku banka tilkynntu eftir lokun markaða í gær að boðaður samruni bankanna hefði verið blásinn af. Bent var á afstöðu Samkeppniseftirlitsins sem ástæðu þess að viðræðum var slitið. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, lýsir blendnum tilfinningum vegna þessa, í samtali við Vísi. „Það voru mikil tækifæri þarna í að lækka kostnað og ég tel að það hefði skilað sér til neytenda og hluthafa og það eru auðvitað vonbrigði að því leytinu til. Hins vegar er það þannig að Kvika var náttúrulega á sinni skemmtilegu vegferð, sem við höfum verið á síðastliðin tíu ár og hefur gengið frábærlega vel, og þetta auðvitað gefur okkur þá tækifæri til þess að halda áfram á þeirri vegferð. Þannig að það er auðvitað mjög spennandi og ég held nú að starfsfólk hér inni sé alveg ánægt með þann hluta.“ Tilgangslaust að halda áfram Ármann segir að stjórnir bankanna tveggja hafi gengið til svokallaðra forviðræðna við Samkeppniseftirlitið til þess að fá álit eftirlitsins áður en gengið yrði til formlegs samrunaferlis. Eftir langt, ítarlegt og að mörgu leyti vel unnið ferli af allra hálfu hafi komið í ljós á fundi í gær að eftirlitið gæti ekki séð að samruninn yrði samþykktur. „Undirliggjandi ástæðan fyrir því er að eftirlitið telur að Kvika hafi samkeppnisleg áhrif umfram sína stærð á íslenskum markaði og allar þær mótvægisaðgerðir, sem voru lagðar fram af hendi okkar og Arion til þess að mæta því, þau töldu þær mótvægisaðgerðir ekki nægjanlegar og við höfðum bara ekki fleiri útfærslur, sem virtust vera líklegar til þess að hljóta náð fyrir augum þeirra. Þannig var þetta og því tilgangslaust að halda áfram með ferlið.“ Samruni Kviku við stærri banka óhugsandi í augum eftirlitsins Þá segir hann að það hafi verið túlkun allra aðila að afstaða Samkeppniseftirlitsins þýddi í raun að stóru bankarnir megi ekki kaupa Kviku en áður en gengið var til viðræðna við Arion hafði Íslandsbanki óskað eftir samrunaviðræðum við Kviku. „Við lítum þannig á að það sé búið að svara þeirri spurningu, hvort að einhverjir af stóru bönkunum megi kaupa Kviku. Þannig að það er frekar skýrt í mínum huga.“ Fylgja eftir plani A Ármann segir að Kvika hafi lagt fram plan árið 2024, sem bankinn hafi verið að fylgja þegar tilboð bárust um samruna frá Arion banka og Íslandsbanka, og nú verði því plani áfram fylgt eftir. „Það gengur í raun og veru út á það að halda áfram að vaxa bæði hér og í Bretlandi. En á sama tíma þá höfum við líka sagt að við búum við óvenju mikinn fjárhagslegan styrkleika þannig að við munum núna, þegar línurnar eru orðnar skýrar, nota tækifærið og koma umtalsverðum fjármunum til hluthafa í formi arðgreiðslna og endurkaupa og eins og við sögðum á uppgjörsfundinum sem var fyrir síðasta ár, þá erum við að gera ráð fyrir því að útgreiðslur til hluthafa muni nema á þessu ári eitthvað í kringum 15 milljörðum og engu að síður erum við að gera ráð fyrir því að vaxa mjög mikið á þessu ári og á næstu árum. Þannig það er planið.“ Pælir ekki í sveiflum til skamms tíma Tíðindi gærdagsins virðast hafa komið illa við fjárfesta en gengi hlutabréfa í Kviku féll um 11 prósent í fyrstu viðskiptum í morgun. Ármann segist lítið velta sér upp úr gengissveiflum til skamms tíma og bendir á að eðlilegar ástæður séu fyrir lækkuninni. „Þegar gengið var til samrunaviðræðna við Arion þá var það gert á grundvelli þess að Kvika yrði metin 20 prósent hærra heldur en þáverandi markaðsvirði í samrunanum. Og í ljósi þess að af samrunanum verður ekki og þar af leiðandi er vonin um þetta yfirverð horfin, fyrir utan möguleikann á samlegðaráhrifum sem hefðu líka komið, þá var kannski við því að búast að gengið myndi lækka.“
Kvika banki Arion banki Fjármálafyrirtæki Samkeppnismál Mest lesið Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Viðskipti innlent Ungir fatasalar möluðu gull Viðskipti innlent Aðeins 28 ára og stýrir Framúrskarandi fyrirtæki Framúrskarandi fyrirtæki „Þau bentu mér á að ég gólaði ansi oft með“ Atvinnulíf Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Viðskipti innlent Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent Fleiri fréttir Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Sjá meira