Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Árni Sæberg skrifar 16. apríl 2026 16:23 Liv Bergþórsdóttir er forstjóri Bioeffect. ORF Húðvörufyrirtækið Bioeffect hefur stefnt Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, vegna synjunar á umsókn félagsins um framlengingu skattafrádráttar vegna rannsókna og þróunar. Fjölmörg nýsköpunarfyrirtæki hafa átt erfitt með að sækja endurgreiðslur til Rannís, sem þar til fyrir skömmu voru auðsóttar.
Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Bioeffect en fréttastofa fjallaði í vikunni um það að það færðist í vöxt að nýsköpunarfyrirtækjum sé synjað um endurgreiðslur vegna rannsókna og þróunar. Sviðstjóri hjá Samtökum iðnaðarins kallaði þá eftir því að stjórnvöld drægju úr óvissu og samtökin hafa bent á að tækni- og hugverkafyrirtæki hefðy á síðasta ári skilað þjóðarbúinu meiri útflutningstekjum en sjávarútvegurinn. Telja bindandi ákvörðun hafa legið fyrir Í tilkynningu segir að Bioeffect byggi málshöfðunina annars vegar á því að í málinu hafi legið fyrir bindandi stjórnvaldsákvörðun af hálfu Rannís um að samþykkja umsóknina áður en Rannís hafi breytt afstöðu sinni og hafnað umsókn félagsins. Hins vegar telji Bioeffect að jafnvel þótt ekki verði á það fallist að bindandi ákvörðun hafi legið fyrir, þá hafi endanleg synjun Rannís verið efnislega í andstöðu við lög og að við meðferð málsins hafi Rannís brotið á rétti félagsins samkvæmt stjórnsýslulögum með margvíslegum hætti. „Bioeffect virðist ekki eitt um að lenda í þessari stöðu en líkt og komið hefur fram í fjölmiðlum, hafa ýmsir aðilar lýst gjörbreyttri og neikvæðari afstöðu og nálgun Rannís, þótt ekki liggi fyrir neinar laga- eða reglugerðarbreytingar sem skýrt geta breytta framkvæmd.“ Synjunin röng að formi og efni til Þá segir Bioeffect sé leiðandi á alþjóðavísu í þróun húðvara sem byggi á vaxtarþáttum framleiddum með aðferðum plöntulíftækni sem lykilinnihaldsefni og leggi mikla áherslu á rannsóknir og vöruþróun. „Félagið telur synjun Rannís ranga bæði að formi og efni til og hefur því ákveðið að leita réttar síns fyrir dómstólum.“ Félagið muni ekki tjá sig frekar um efni málsins á meðan það er til meðferðar hjá dómstólum.
Nýsköpun Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira