Innlent

Sjávarútvegsstjóri ESB í heim­sókn og fíkni­efni í Nor­rænu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Hádegismynd

Í hádegisfréttum segjum við frá blaðamannafundi atvinnuvegaráðherra með sjávarútvegsstjóra Evrópuasambandsins sem er staddur hér á landi í heimsókn. 

Við ræðum einnig við formann ÖBÍ um þá staðreynd að fatlaðar konur eru allt að tvisvar til þrisvar sinnum líklegri til þess að verða fyrir kynferðislegu ofbeldi en aðrar. Í vikunni undirrituðu samtökin og Kvennathvarfið samstarfssamning sem miðar að því að efla vernd þeirra. 

Þá fjöllum við um fíkniefnafund um borð í Norrænu á dögunum þar sem einn situr í gæsluvarðhaldi. 

Í sportpakka dagsins er það svo körfuboltinn en mikil spenna var í Vesturbænum í gærkvöldi.

Klippa: Hádegisfréttir Bylgjunnar 17. apríl 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×