Ósanngjörn reglugerð ógnar barnalækningum á Íslandi Helga Elídóttir skrifar 19. apríl 2026 09:02 Íslenskt heilbrigðiskerfi er sérstakt að mörgu leyti. Fámenni þjóðar og staðsetning í Norður-Atlantshafi hefur í gegnum tíðina haft meiri áhrif en margir gera sér grein fyrir. Þetta birtist meðal annars í því að læknar þurfa að sækja sér sérfræðimenntun að verulegu leyti erlendis. Þótt framfarir hafi orðið í sérnámi hér á landi er enn ómögulegt að afla sér fullnægjandi menntunar, þekkingar og reynslu í fjölmörgum sérgreinum innanlands. Við erum lánsöm því nágrannaþjóðir okkar hafa tekið vel á móti íslenskum læknum sem eru eftirsóttir starfskraftar á erlendum sjúkrahúsum. Íslenska heilbrigðiskerfið er þannig háð því að önnur lönd taki við okkar læknum í sérnám og ekki síður að þeir skili sér aftur heim að því loknu. Á síðustu árum hefur þó skapast alvarlegt ástand vegna reglugerðarbreytingar sem torveldar heimkomu sérfræðilækna í vissum sérgreinum. Nú er staðan sú að tveir læknar geta starfað hlið við hlið á Landspítala, með sömu menntun, sömu ábyrgð og sambærileg störf, en aðeins annar fær sérfræðimenntun sína viðurkennda af yfirvöldum. Munurinn liggur eingöngu í því að sá sem fær sérnám sitt ekki viðurkennt flutti til Íslands eftir árið 2023, þegar reglugerðin tók gildi. Fyrir barnalækningar skiptir þetta gríðarlegu máli því þessi breyting á veitingu sérfræðileyfa hefur alvarlegar afleiðingar fyrir þá læknisþjónustu sem við getum boðið börnum hér á landi. Í mörgum undirsérgreinum barnalækninga eru afar fáir barnalæknar starfandi á landinu sem gerir það að verkum að starfsemin og þjónustan við börn með vissa sjúkdóma eru mjög brothætt. Því miður sjáum við nú fram á að missa barnalækna aftur úr landi og fá ekki barnalækna heim eftir sérnám eingöngu vegna þessara breytinga á reglugerð. Enn fremur er ólíklegt að barnalæknar fari í vissar undirsérgreinar sjái þau fram á að fá sérmenntunina ekki metna að verðleikum í sínu heimalandi og er því yfirvofandi hætta á skorti á endurnýjun á vissum sviðum. Í núverandi regluverki er ekki nægjanlegt tillit tekið til þess að viðurkenning sérfræðiréttinda er mismunandi milli landa og sérgreina, og að veiting sérfræðileyfa á Íslandi þarf að taka mið af sérstöðu okkar þar sem læknar afla sér menntunar að verulegu leyti erlendis. Þar að auki er krafist íslenskra marklýsinga á sérnámi, sem í raun er óframkvæmanlegt skilyrði. Það skýtur skökku við að sendinefnd sé send erlendis til að laða lækna aftur heim til að starfa í íslensku heilbrigðiskerfi á sama tíma og steinn er lagður í götu þeirra. Félag íslenskra barnalækna hefur áður sent erindi um þetta mál til heilbrigðisráðuneytis og svokallaður spretthópur ráðuneytisins vinnur að úrbótum en svo virðist sem lítill skilningur sé til staðar á því hversu víðtækar afleiðingar þessi reglugerðarbreyting hefur í för með sér fyrir barnalækningar á Íslandi. Félag íslenskra barnalækna hvetur heilbrigðisráðherra og spretthópinn að skoða málið af sanngirni og raunsæi og leita álits hjá sérfræðingum sem þekkja málið vel þar sem núverandi reglugerð og túlkun hennar er stórskaðleg íslensku heilbrigðiskerfi. Höfundur er formaður félags íslenskra barnalækna og yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar