„Ég er hrikalega stoltur af honum“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 19. apríl 2026 14:45 Óskar Hrafn segir Orra hafa klúðrað víti á besta mögulega tíma í gærkvöldi og veit að það fer bara í reynslubankann góða. vísir Eftir að hafa fengið aðeins illt í föðurhjartað horfði Óskar Hrafn Þorvaldsson stoltur á son sinn Orra Stein Óskarsson vinna spænska konungsbikarinn með liði Real Sociedad í gærkvöldi.
Óskar er önnum kafinn við þjálfun KR og gat ekki verið viðstaddur úrslitaleikinn sem Real Sociedad vann í vítaspyrnukeppni gegn Atlético Madrid í gærkvöldi. Móðir Orra, Laufey Kristjánsdóttir, og systur hans Magnea og Emelía Óskarsdætur voru mættar til Sevilla en Óskar horfði á þennan tauga trekkjandi leik í góða vina hópi. „Ég held að það hafi nú alltaf verið vitað að þetta yrði tauga trekkjandi leikur. Þeir höfðu ekki náð að vinna Atlético Madrid í vetur og Atlético er frábært lið sem er nýbúið að slá Barcelona út í tveggja leikja einvígi í bæði bikarnum og í Meistaradeildinni. Það var alltaf vitað að það yrði á brattann að sækja og þeir þurftu að þjást töluvert, en sýndu bara hrikalega sterkan karakter,“ sagði Óskar Hrafn í samtali við Vísi. Orri Steinn sést til hægri fagna bikarmeistaratitlinum. EPA/Jose Manuel Vidal Rauðum dregli bara rúllað út í fullkomnum heimi Orri Steinn klikkaði á öðru víti Real Sociedad í vítakeppninni. Það kom þó ekki að sök því Alexander Sorloth og Julian Alvarez höfðu klikkað á fyrstu tveimur vítum Atlético. Bæði lið skoruðu svo úr sínum næstu spyrnum og Sociedad fagnaði sigri. „Besti mögulegi tíminn til að brenna víti, ef þú ætlar að klikka í vítakeppni, þá er fínt að gera það þegar hinir brenna fleiri vítum af og þú vinnur. En þetta fer allt í reynslubankann.“ Þú hefur samt örugglega fengið aðeins illt í föðurhjartað þarna? „Jú auðvitað er það þannig. Auðvitað viltu bara að börnunum þínum gangi vel og allt gangi upp en svo getur maður líka horft á þetta sem dýrmæta reynslu. Þó maður vilji auðvitað, í hinum fullkomna heimi, að börnin manns falli aldrei og geti bara gengið á einhverjum rauðum dregli í gegnum lífið. Það er bara ekki þannig. Þannig að ég sef alveg yfir þessari vítaspyrnu og læt hana ekki skilgreina þennan leik eða þennan titil. Það sem hann gerði í bikarleikjunum og það sem hann gerði í deildinni fram að því, það stendur upp úr. Ég hef meiri áhyggjur af Julian Alvarez, það var dýrkeyptara víti að brenna af.“ Vítaspyrna Orra í gærkvöldi var varin. Fran Santiago/Getty Images Eins og að keppa við Kane um framherjastöðuna hjá Bayern Fram að vítaklúðrinu hafði Orri verið mjög öflugur. Hann var settur inn af varamannabekknum á 78. mínútu, kom sér fljótt í fínt færi og var nálægt því að setja sigurmarkið. „Mér fannst hann eiga mjög öfluga innkomu. Hann er auðvitað búinn að missa mikið úr á þessu tímabili vegna meiðsla og er að komast aftur á sinn besta stað. Það er samt auðvitað erfitt að koma sér í leikform þegar þú ert að berjast við Mikel Oyarzabal um stöðuna, það er svona svipað og að berjast við Harry Kane um framherjastöðuna hjá Bayern Munchen. En ég er hrikalega stoltur af honum. Ánægður með hvernig hann er að þroskast og vaxa, bæði sem leikmaður og karakter.“ Skemmtilegt samband við stuðningsmenn Orri Steinn virðist vera mjög vel liðinn meðal stuðningsmanna Real Sociedad. Þó hann hafi misst mikið úr vegna meiðsla á þessa tímabili hafa stuðningsmenn haldið nafni hans hátt á lofti, í takt við lagið Café Con Ron eftir Bad Bunny. „Já það lítur út fyrir það. Ég fór á einn leik þarna í vetur og þá fann maður alveg fyrir því. Hann er ungur maður sem á auðvelt með að tengjast fólki, sem er mikilvægur þáttur í því að lifa af í þessum heimi sem atvinnumennska er. Hann hefur náð góðri tengingu við stuðningsmenn og það hjálpaði þegar hann var að snúa til baka eftir langa fjarveru. Það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með því.“ Orri hefur stýrt nokkrum hópsöngvum á þessu tímabili. Jose Breton/Pics Action/NurPhoto via Getty Images Svo virðist hann vera orðinn reiprennandi í spænskunni? „Já hann hefur tekið það föstum tökum, verið í einkatímum þrisvar í viku og staðið sig vel í því. Það var kannski ekkert frábært fyrir spænskuna hans að það kom bandarískur þjálfari, þannig að hann talar spænskuna minna eftir þjálfaraskiptin. En hann hefur bara nýtt tækifærið vel, flutti í nýtt land og fellur vel inn í lífið sem býðst þar.“
Spænski boltinn KR Íslenski boltinn Fótbolti Spánn Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ „Hélt stuðningsmönnum Englanna í sjöunda himni allt árið“ Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Kemur Íslendingnum unga til varnar „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Áfram skorar Andri Lucas PSG setti nýtt met í kvöld Börsungar léku sér að Aston Villa Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Halda áfram að raða inn sigrum í Meistaradeildinni Daníel átti þátt í dramatísku sigurmarki Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Elsti sonur Ronaldo valinn í sautján ára landsliðið Stelpurnar okkar í riðli með Dönum og Ítölum Aðeins nokkrir dagar í nýjan samning Þrettánda mark Bjarka í ellefu leikjum kom beint úr aukaspyrnu „Þið haldið kannski að ég sé brjálaður“ Sakar Mac Allister um að reyna að veiða sig í að fá rautt spjald West Ham búið að reka stjórann Brotnaði niður á æfingu á síðustu leiktíð en er nú næstur á eftir Haaland Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Sjá meira