Körfubolti

„Orðnar betri í að standa saman og klára leikinn“

Siggeir Ævarsson skrifar
Isabella Ósk átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld, klikkaði vart úr skoti og skilaði 22 stigum í hús og átta fráköstum að auki
Isabella Ósk átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld, klikkaði vart úr skoti og skilaði 22 stigum í hús og átta fráköstum að auki Vísir/Vilhelm

Grindavík er komið í bílstjórasætið í einvígi liðsins gegn Njarðvík í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna eftir 81-87 sigur í Njarðvík í kvöld. 

Isabella Ósk Sigurðardóttir átti frábæran leik fyrir Grindavík í kvöld og var hæstánægð í leikslok með að vera búin að stela heimavellinum af Njarðvík.

„Bara geggjuð. Við komum inn í þennan leik tilbúnar. Fylgdum leikplaninu og það virkaði hjá okkur í dag.“

Það hefur verið mikið rætt um hversu hávaxið lið Grindavíkur er og það sýndi sig í dag en Njarðvíkingar voru oft í tómu basli með Grindvíkinga í teignum. Isabella sagði að það hefði verið stór partur af uppleggi leiksins að sækja þangað.

„Það var stór partur hjá okkur. Við erum með mjög sterka leikmenn í teignum hjá okkur. Mikið af stórum og góðum leikmönnum sem geta líka skotið.“

Sjálf skoraði Isabella 22 stig og klikkaði aðeins úr tveimur af ellefu skotum sínum. Ósjaldan keyrði hún beint á körfuna og setti boltann mjúklega spjaldið ofan í. Það var þó alls ekki eitthvað sem hún hefur verið að æfa sérstaklega að sögn.

„Nei, ekki þannig. Þær voru að gefa mér þetta og ég tók því.“

Á tímabili leystist leikurinn upp í hálfgerða vitleysu þar sem það var mikið brotið og hart tekist á. Hentar það Grindvíkingum mögulega betur en Njarðvík þegar leikurinn fer aðeins úr böndunum?

„Ég veit það ekki. Við vorum bara einhvern veginn tilbúnar í dag. Oft í vetur hefur það verið þannig að hitt liðið kemur og við einhvern veginn gefumst upp. Mér finnst við vera „orðnar betri bara í að standa saman og klára leikinn.“

Þrátt fyrir að vera komnar í góða stöðu í einvíginu er Isabella ennþá með báða fætur á jörðinni.

„Einn leikur í einu. Við fögnum þessu í dag og mætum svo bara á æfingu á morgun og undirbúum okkur fyrir næsta leik.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×