Sparnaður eða sóun? Kristinn Jón Ólafsson skrifar 21. apríl 2026 09:15 Í október síðastliðnum fjallaði Forbes um þróun Reykjavíkur og hvað aðrar borgir geta lært af stafrænni þjónustu hennar. Það er ekki sjálfgefið að íslensk sveitarfélög veki slíka alþjóðlega athygli - en það gerist þegar hlutirnir eru gerðir vel og með skýrum markmiðum. Árangur sem mælist Alla tíð Pírata í borginni hefur verið unnið markvisst að því að einfalda þjónustu, stytta biðtíma og nýta betur tíma bæði íbúa og starfsfólks Reykjavíkurborgar. Árangurinn er mælanlegur: sem dæmi hefur heimsóknum í þjónustuver Reykjavíkurborgar fækkað um 50% með tilkomu m.a. rafrænna byggingarleyfa, teikningaskönnunar og vefaðstoðar – og fyrsta stóra stafræna verkefni borgarinnar, rafræna fjárhagsaðstoðin, hefur stytt biðtíma um allt að 90% - árangur sem hefur leitt til þess að fjöldi annarra sveitarfélaga hefur einnig tekið lausnina upp.Þjónustuumbreytingar sem þessar hafa ekki bara skilað bættri þjónustu til íbúa, heldur einnig lagt grunn að aukinni skilvirkni. Í dag sparast yfir 100.000 vinnustundir á ári og samkvæmt fyrstu mælingum er stafræna þjónustuumbreytingin að skila 1,7 milljarða króna í ábata árlega.Þetta er kjarni málsins: þrátt fyrir að aðeins hluti verkefna hafi verið metinn - eða um 25% þeirra - sjáum við strax að verkefnin skila betri nýtingu fjármuna og minni sóun. Reykjavík sem fyrirmynd Við innleiðingu stafrænna þjónustulausna hefur áhersla verið lögð á að vinna með öðrum frekar en að byggja upp dýr, einangruð kerfi. Lausnir sem eru þróaðar og þekking sem hefur myndast innan Reykjavíkurborgar nýtist víðar, til dæmis er stafræn innritun í grunnskóla, sem byrjaði hjá borginni, nú innleidd á landsvísu í samstarfi við Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu.Það er með svona hugsun og aðgerðum sem við náum stærðarhagkvæmni sem skilar sér til skattgreiðenda.Skynsamlegt næsta skref Nú verður fyrsta stafræna stefna Reykjavíkurborgar tekin til fyrri umræðu á borgarstjórnarfundi í dag, en hún gildir til 2030. Slík stefna er eðlilegt framhald af þeirri þjónustuumbreytingu sem hefur þegar átt sér stað hjá borginni.Áherslurnar eru einfaldar: að þjónusta sé aðgengileg og skilvirk, að kerfi tali saman til að koma í veg fyrir tvíverknað, að efling stafrænnar hæfni og fræðslu til stjórnenda, starfsfólks og íbúa sé forgangsraðað, að öryggi gagna og innviða sé tryggt og að ákvarðanir byggi á traustum gögnum. Áhersla er einnig lögð á stafrænt fullveldi Reykjavíkurborgar sem felur í sér að borgin haldi stjórn á eigin gögnum og innviðum eins og hægt er. Ekki er um að ræða tilraunastarfsemi, heldur áherslur og aðgerðir sem eiga sér hliðstæður í nágrannalöndum og hafa reynst vel. Öryggi sem forsenda Net- og upplýsingaöryggi er svo burðarstólpinn í stefnunni. Í heimi þar sem netárásir á opinbera aðila fara fjölgandi er ljóst að öryggi er ekki eitthvað sem við getum hummað af okkur og vonast til að reddist. Slíkar ógnir kalla á fyrirbyggjandi hugsun, gagnadrifna stefnumótun og trausta innviði. Hvað kostar þetta í raun? Undanfarin ár hafa komið fram hugmyndir um að draga úr fjárfestingu í stafrænum umbótum eða breyta skipulagi þeirra. Það er eðlilegt að ræða forgangsröðun í opinberum rekstri. En það skiptir máli að gera það á grundvelli staðreynda.Innleiðing nýrrar stafrænnar stefnu mun byggja á reglulegu stöðumati, skýrum ábyrgðaraðilum og aðgerðaráætlunum sem eru uppfærðar reglulega í takt við þróun. Þannig verður hægt að fylgjast með árangri, bregðast tímanlega við og tryggja að fjármunir nýtist þar sem þeir skila mestum ávinningi. Við þekkjum vel þá innviða- og tækniskuld sem hið opinbera lenti í eftir hrunið 2008. Að draga úr stafrænum umbótum lítur kannski út eins og sparnaður til skamms tíma en reynslan, bæði hérlendis og erlendis, sýnir að það er dýrara að halda í gömul og sundurleit kerfi en að einfalda þau. Skammtíma sparnaður sem leiðir til lengri biðtíma og meiri handavinnu skilar sér bara í auknum kostnaði sem endar hjá skattgreiðendum. Tækni á forsendum íbúa Meginstef nýrrar stafrænnar stefnu er að tryggja að áframhaldandi innleiðing tækni verði ekki tækninnar vegna, heldur á forsendum fólks. Tilgangurinn er að einfalda þjónustu, spara tíma og gera daglegt líf íbúa auðveldara. Á sama tíma er lögð rík áhersla á að þessi þróun fari fram með ábyrgum hætti - án þess að fórna mikilvægum öryggis- og persónuverndarsjónarmiðum, fullveldi eða gagnsæi og lýðræðislegu aðhaldi. Í stefnunni er skýr áhersla á ábyrga notkun nýrrar tækni sem byggir á skýrum reglum, siðferðilegum viðmiðum og reglulegu mati á áhrifum og áhættu. Þannig byggjum við upp borg sem nýtir tæknina af skynsemi og virkar fyrir fólkið sem í henni býr. Höfundur er oddviti Pírata og varaformaður Stafræns ráðs Reykjavíkurborgar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kristinn Jón Ólafsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar