Viðskipti innlent

Dagar hf. ráða nýjan fjár­mála­stjóra

Freyja Þórisdóttir skrifar
Magnús er með MBA-gráðu frá Schiller International University í Flórída og er jafnframt viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands.  Hann er nýr fjármálastjóri Daga hf.
Magnús er með MBA-gráðu frá Schiller International University í Flórída og er jafnframt viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Hann er nýr fjármálastjóri Daga hf.

Þjónustufyrirtækið Dagar hf. hefur ráðið til sín Magnús Jón Magnússon, viðskiptafræðing, sem nýjan fjármálastjóra. Hann tekur jafnframt sæti í framkvæmdastjórn félagsins en alls starfa þar um sjö hundruð manns á þremur starfsstöðvum.

Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá Dögum en þar segir einnig að Magnús komi til þeirra frá Icelandair, þar sem hann starfaði í tíu ár. Þar hafi hann gegnt síðast lykilhlutverki í stefnumótun og eftirfylgni rekstrar, en áður sem sérfræðingur á sviði fjármála og rekstraráætlunargerðar.

Brynhildur Guðmundsdóttir, forstjóri Daga, starfaði áður sem stjórnandi og leiðtogi hjá Icelandair Hotels.

„Ráðning Magnúsar er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu félagsins. Með reynslu sinni og þekkingu mun hann styðja við aukna skilvirkni, styrkja fjármálastýringu og stuðla að frekari þróun á stafrænu og tæknilegu umhverfi Daga. 

Magnús hefur víðtæka þekkingu á fjármálastjórnun, greiningu og umbótaverkefnum sem mun nýtast vel í áframhaldandi vexti félagsins,“ segir Brynhildur Guðmundsdóttir, forstjóri Daga en hún hefur gegnt hlutverkinu frá því í júlí 2025. 

Í tilkynningu segir að Magnús sé með MBA-gráðu frá Schiller International University í Flórída og sé jafnframt viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Dagar starfa á þremur mismunandi stöðum um landið og hjá þeim starfa um sjö hundruð manns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×