Aðlögun er hluti af aðildarferlinu Erna Bjarnadóttir skrifar 21. apríl 2026 11:02 Samkvæmt 49. gr. sáttmálans um Evrópusambandið felst umsókn um aðild í því að ríki sækir um inngöngu í samband sem byggir á fyrirliggjandi regluverki þess, og ganga viðræðurnar út á að samræma löggjöf og byggja upp stjórnsýslu til að framfylgja því. Um þetta þarf vart að deila enda fara viðræður við ný aðildarríki fram á þessum grunni. Í fundargerðum og samningsgögnum, svo sem rýniskýrslum, er jafnframt ítrekað vísað til „progress in legislative alignment with the Directives“, sem felur í sér framfarir í lagalegri aðlögun á meðan viðræður standa yfir (sjá svokallað ráðsskjal ESB frá 18. desember 2012). Að halda öðru fram felur í sér að horft er fram hjá þeirri meginforsendu sem kemur fram í 49. grein sáttmálans um hvernig aðildarferlið er skilgreint og hvernig það virkar. Af þessu leiðir að þeir „fyrirvarar“ sem settir voru fram í greinargerð utanríkismálanefndar hafa ekki sjálfstætt vægi í ferlinu gagnvart Evrópusambandinu. Þetta kom fljótt í ljós þegar tók að reyna á aðildarferlið. Hver málaflokkurinn á fætur öðrum steytti á skeri og sumir samningskaflar voru aldrei opnaðir. Reynslan af viðræðunum 2009–2013 Samningskaflar um landbúnað (11) og byggðamál (22) voru ekki opnaðir. Rýniskýrslur í þessum köflum voru skýrar um kröfur, meðal annars um uppbyggingu stjórnsýslu til að framkvæma sameiginlegu landbúnaðarstefnuna. Í kafla um matvælaöryggi og dýraheilbrigði (12) strandaði vinna m.a. á kröfum Íslands um undanþágur frá flæði á hráu og ófrosnu kjöti og lifandi dýrum. Sá kafli fór til utanríkismálanefndar sem fundaði með fjölda sérfræðinga um þessi mál og niðurstaðan var að aldrei var lagt upp með neinar lagabreytingar. Þeir kaflar sem lokað var voru að stórum hluta EES-kaflar, þar sem löggjöf hafði þegar verið samræmd að verulegu leyti og því ekki um að ræða sambærilega aðlögun. Það að ekki sé hægt að benda á skýr dæmi um lagabreytingar skýrist af því að viðræðurnar náðu ekki því stigi í mörgum köflum að á það reyndi. Í sumum tilvikum var ekki vilji til að ganga að kröfum og í öðrum tilvikum stöðvuðust viðræður vegna ágreinings. Aðlögun í framkvæmd Fyrir liggur að unnið var að aðlögun á meðan viðræðurnar stóðu yfir, meðal annars með stuðningi svonefndra IPA-styrkja sem beindust að því að undirbúa stjórnsýslu og innleiðingu regluverks. Slík uppbygging snýr ekki aðeins að lagabreytingum heldur einnig að kerfum og verklagi sem ekki er einfalt að snúa til baka. Aðlögun er hluti af ferlinu samkvæmt samningsgögnum ESB, og gögn úr viðræðunum 2009–2013 sýna að í mörgum köflum var gert ráð fyrir umfangsmikilli aðlögun. Viðræðurnar náðu hins vegar ekki því stigi að á það reyndi í framkvæmd í þeim málaflokkum sem heyra ekki undir EES-samninginn. Höfundur er hagfræðingur og situr í stjórn Heimssýnar, hreyfingu sjálfsstæðissinna í Evrópumálum. Heimild Ráðsskjal ESB frá 18. desember 2012:https://data.consilium.europa.eu/doc/document/ST-17894-2012-INIT/en/pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Erna Bjarnadóttir Mest lesið Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Halldór 19.09.2026 Halldór Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Skoðun Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar