Ég er ekki torfkofamatur Rakel Hinriksdóttir skrifar 21. apríl 2026 13:48 Sonur minn sem er 8 ára skreið upp í til mín einn morguninn fyrir stuttu. Snjórinn er að bráðna fyrir norðan, vorið er að lifna við og fuglasöngur barst til okkar inn um gluggann. „Heyrirðu hvað það er gott veður?“ sagði hann og brosti. „Þetta er besta tilfinningin mín.“ Hann bræddi mig algjörlega, og minnti mig á það, þegar ég fékk að vera barn í mjúkum og hlýjum dal í Þingeyjarsveit. Þar sem ég vaknaði og sofnaði við lækjarnið á hverjum degi. Lækurinn minn hríslast um mig enn í dag og fyllir mig lífi og löngun til þess að vera til. Besta tilfinningin mín. Ég lít á það sem dýrmæt forréttindi, að búa á Íslandi. Að hafa fengið að alast upp í friði, í faðmi fjallanna, í lifandi og síbreytilegri náttúru. Að fá að lifa bjartar nætur við gjöfult haf. Náttúruvernd er ekki vesen Við eigum öll okkar dýrmætu stundir og heimahafnir í íslenskri náttúru. Þar sem rætur okkar liggja og tengja okkur við landið og hvert annað. Þar sem okkur líður vel. Að vera verndari náttúrunnar eru forréttindi, sem ég er þakklát fyrir. Það hefur ekki nein áhrif á mig, þegar mér er sagt að það sé vesen að vera náttúruverndarsinni. Að það sé í eðli manna að nýta og afla - og slíkt skuli aldrei hika við. Að óbeislað fljót sé töpuð orka og að ég sé að skemma fyrir með mínar kröfur um að áhrif framkvæmda á náttúruna og lífríkið sé tekið til greina. Ég er sögð vera á móti framförum og lífsgæðum. Torfkofamatur og andstæðingur framtíðarinnar. Það er reyndar þveröfugt. Ég er í náttúruvernd vegna þess að ég elska framtíðina. Ég skil að hér verður líf eftir minn dag, og ég óska þess að það verði litað sömu dýrðum og mitt. Hvað er náttúruvernd? Náttúruvernd er ekki eitthvað sem við störfum við og klæðum okkur úr og í eftir hentisemi, gróðatækifærum, skammtímahugsjón og sérhagsmunum. Náttúruvernd er tilvera og mennska. Eitthvað sem umvefur okkur og tengir okkur öll saman, þvert á kynslóðir, samfélög og lífsviðurværi. Náttúruvernd er að gefa sér tíma og rými til þess líta í kring um sig og stíga varlega til jarðar. Náttúruvernd er að bera virðingu fyrir jörðinni, lífinu og sjálfum sér. Að velja á hverjum degi að lifa af meðvitund, jafnvægi og nægjusemi. Náttúruvernd er ekki óæskileg. Fyrir. Hamlandi. Til vandræða og vergangs. Við viljum ekki stöðva allt. Við viljum að vandað sé til verka og hlustað á fagfólk á sviði náttúruvísinda þegar á að framkvæma. Náttúruvernd er umhyggja. Skynsemi og hóf. Samhljómur. Hún er bæn til framtíðarinnar og við sem höfum sæst við það að hafa náttúruverndarhjarta, og leyfum því stolt að slá, elskum framtíðina - börnin okkar og landið. - Komdu með í Græna göngu á sumardaginn fyrsta, þar sem við ætlum að ganga saman fyrir íslenska náttúru. Fyrir framtíðina og landið sem við elskum og viljum afhenda komandi kynslóðum í sprúðlandi blóma, lífsins litadýrð og fuglasöng. Höfundur er formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi. Græn ganga hefst við Arnarhól kl. 13.30, og gengið verður í Hljómskálagarðinn. Hálendishátíð verður í IÐNÓ um kvöldið með tónlistarveislu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Halldór 19.09.2026 Halldór Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson Skoðun Skoðun Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Sagan frá hinni hliðinni Sólveig Jancauskiene skrifar Skoðun Ég er kominn heim - eða hvað? María Pétursdóttir,Ingólfur Már Magnússon skrifar Skoðun Raunveruleiki Wolt-sendla og gigg-hagkerfisins Katrin Þóra Jonsson,Joonas Tuompo skrifar Skoðun Hvað ef internetið lokaði kl.18? Tinna Tómasdóttir skrifar Skoðun Nemandinn fær tíu – en hvað hefur hann lært? Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Nóttin bjargar ekki deginum – hún afhjúpar hann Grétar Þór Guðjohnsen skrifar Skoðun Excel-væðing mannlífsins Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Kópavogur er klár – en þið? Ásdís Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Hvers konar Ísland viljum við byggja? Albertína Friðbjörg Elíasdóttir skrifar Skoðun Fjölmiðlahelsi Sigurður Örn Hilmarsson skrifar Skoðun Að horfa heim Vera Wonder Sölvadóttir skrifar Skoðun Bættar styrkjareglur í menningarborginni Reykjavík Rúnar Freyr Gíslason skrifar Skoðun EES eftir 29. ágúst 2026 Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun D-vítamín og nýju fötin keisarans Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eitruð jákvæðni í boði menntakerfisins Andri Þorvarðarson skrifar Skoðun Kröfur eru umhyggja Brynjar Karl Sigurðsson skrifar Skoðun Ákall til stjórnvalda Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Er mér óhætt hér?” sjúklingaöryggi fatlaðs fólks Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Viðskiptaráð með rörsýn á leigumarkaðinn Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Sáttamiðlun í sakamálum á Íslandi? Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Á Reykjavík að hafa þingmenn á Alþingi? Jón Bjarnason skrifar Skoðun Vefurinn kom á undan félaginu Gestur Valgarðsson skrifar Sjá meira
Skoðun Ferðastofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju dagaði lagareldisfrumvarpið uppi? Ráðherrann og staðreyndirnar eru ekki alveg sammála Jóhann Helgi Stefánsson skrifar