Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Birgir Olgeirsson skrifar 21. apríl 2026 13:49 Kjartan Kjartansson, framkvæmdastjóri og eigandi prentsmiðjunnar Ísafold. Prentsmiðjan var tekin til gjaldþrotaskipta í gær. 17 starfsmenn missa vinnuna. Aðsend/Ísafold Prentsmiðjan Ísafold hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta og sautján starfsmenn missa vinnuna. Prentsmiðja Ísafoldar var elsta prentsmiðja landsins og jafnframt sú næststærsta en Ísafold sá hér áður fyrr um að prenta Fréttablaðið og prentaði 105 þúsund eintök 7 daga vikunnar þegar mest lét. „
Þetta er bara vonlaus business,“ segir Kjartan Kjartansson, framkvæmdastjóri prentsmiðjunnar Ísafoldar, í samtali við Vísi um þessi tímamót. Hann hefur verið eigandi Ísafoldar frá árinu 2002 en hann byrjaði í prentbransanum árið 1979. Mestur var atgangurinn í faginu á blómatímabili Fréttablaðsins sáluga á fyrsta áratug þessarar aldar, en útgáfufélag blaðsins, Torg, var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2023. „Prentbransinn er bara vonlaus business og allir að ströggla, ekki bara á Íslandi heldur út um allan heim. Svo í ofanálag er launakostnaður hár á Íslandi og miklu ódýrara að prenta erlendis. Við prentuðum allar kiljur hér áður fyrr en nú er þetta allt farið í prentun erlendis,“ segir Kjartan.Hann segir að það hafi vissulega verið erfitt að kveðja samstarfsfólkið sitt hjá Ísafold með þessum hætti. Hingað til hafi fólk ekki hætt nema það væri komið á aldur. „Og ég sjálfur löngu kominn á aldur. Orðinn 71 árs.“ Og sökum þess sé hann ekkert að stressa sig á því hvað taki við hjá sér næst. „Ég horfi bara björtum augum til sumarsins enda með fjölda áhugamála sem þarf að sinna,“ segir Kjartan.
Gjaldþrot Garðabær Fjölmiðlar Mest lesið Eins og James Bond: Huggulegur, ferðast, leysir vandamál og drekkur martini Atvinnulíf Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Viðskipti innlent Þurrsteypa styttir biðtíma og dregur úr raka í byggingum Samstarf Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Viðskipti innlent Verðmæta samtalið er oft við kaffivélina eða á ganginum Atvinnulíf John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Viðskipti innlent Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Viðskipti erlent Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Viðskipti innlent Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Ekki sést til lands í deilunni sem hefur haft áhrif á yfir sjö þúsund farþega Sigurjón nýr framkvæmdastjóri Mediacom Ógnarlöng stefna Samkeppniseftirlitsins kemst að eftir allt saman Hakkarar geti lesið gögn af læstri tölvu á tíu mínútum án lykilorðs Sýndareftirlit ef fylgjast eigi með skemmtistöðum á skrifstofutíma Tillögur ráðherra sagðar rýra virði bankanna um tugi milljarða Fjármálaráðherra veldur fyrrverandi varaformanni Viðreisnar vonbrigðum Höskuldur nýr framkvæmdastjóri afþreyingar- og ævintýrasviðs Enn fjölgar aflýsingum Sjá meira