Við erum í sama liðinu Arnór Tumi Jóhannsson og skrifa 23. apríl 2026 08:03 Náttúruverndarhreyfingin tileinkar daginn í dag, sumardaginn fyrsta, íslenskri náttúru. Af því tilefni fer fram græn ganga í höfuðborginni. Samkvæmt lýsingu skipuleggjenda viðburðarins á samfélagsmiðlum er hann hugsaður til þess að halda á lofti hagsmunum íslenskrar náttúru þar sem hún á undir högg að sækja. En undir hvers konar högg á íslensk náttúra helst að sækja? Þessari spurningu hefur t.d. verið svarað á vettvangi Norðurskautsráðsins, sem Ísland er aðili að. Einn starfshópa ráðsins gengur undir nafninu CAFF (Conservation of Arctic Flora and Faura) og hefur það hlutverk að fjalla um vernd dýra og plantna á norðurslóðum. Loftslagsbreytingar eru langalvarlegasta ógnin sem steðjar að líffræðilegum fjölbreytileika á norðurslóðum samkvæmt hópnum, sem Ísland á tvo fulltrúa í, enda er hlýnunin sem af þeim hlýst miklu hraðari á norðurslóðum en annars staðar á jörðinni.[1] Milliríkjanefnd Sameinuðu þjóðanna um loftslagsbreytingar (IPCC) telur óyggjandi (e. unequivocal), að athafnir mannanna hafi leitt til hlýnunar vegna losunar gróðurhúsalofttegunda út í andrúmsloftið.[2] Losunin er afleiðing þess að orkuþörf er uppfyllt með bruna jarðefnaeldsneytis. Orkuþörf er samofin lífi mannanna alls staðar á jörðinni. Hún er misjöfn og mismikil eftir svæðum. Sums staðar þarf að kynda húsakynni fólks, en annars staðar að kæla þau. Sums staðar þarf að gera hvort tveggja eftir árstíð. Víðast hvar eru matvæli kæld til að auka geymsluþol þeirra og oft þarf að hita þau áður en þeirra er neytt. Víða sækir fólk vinnu og nauðsynlega þjónustu annars staðar en það býr. Sumir geta farið ferða sinna undir eigin afli, t.d. með því að ganga eða hjóla. Þetta á einkum við í þéttbýli. Aðrir þurfa að nýta vélknúin farartæki til að komast milli staða. Farartækin þarf að framleiða, líkt og flest annað sem fólk notar og neytir í sínu daglega lífi, og til þess þarf orku. Orkuþörf er háð neyslu. Bent hefur verið á að minnka megi orkunotkun, og þar með losun gróðurhúsalofttegunda, með því að draga úr neyslu. Margir eru meðvitaðir um þessa staðreynd og sumir takmarka neyslu sína á grundvelli umhverfissjónarmiða. Fólki er að mestu í sjálfsvald sett hvort og hvernig það kýs að taka slík skref og er það vel. Þó sumir kjósi að takmarka orkunotkun sína út frá umhverfissjónarmiðum eru fæstir tilbúnir til að gera það að því marki að það hafi veruleg áhrif á daglegt líf þeirra. Flestir kjósa t.a.m. að ferðast, borða og nota internetið (þ.m.t. gervigreind og skýjalausnir) meira en þeir nauðsynlega þurfa. Í þessu ljósi, og út frá spám um mannfjöldaþróun, er ekki að sjá að orkunotkun almennings muni dragast mjög saman nema með ströngu valdboði. En til allrar hamingju ríkir breið sátt í okkar heimshluta um að lýðræði sé ákjósanlegt stjórnarform. Því eru óvinsælum stjórnvaldsaðgerðum gagnvart almenningi fremur þröngar skorður settar. Öllu vænlegri nálgun er að auka meðvitund almennings og treysta því að þannig komist flest fólk að skynsamlegri niðurstöðu. Þetta má til dæmis gera með því að tryggja greiðan aðgang að upplýsingum og hágæða menntun, en þannig vill til að læsi og menntunarstig helst mjög í hendur við framboð á orku. Hvaða aðgerðir sem ráðist er í til þess að minnka losun gróðurhúsalofttegunda geta þær ekki byggt á skörpum samdrætti í neyslu almennings, því ekkert bendir til þess að almenningur vilji draga skarpt úr neyslu sinni. Þar sem loftslagsbreytingar eru hnattrænt fyrirbæri þarf að auka hlutdeild endurnýjanlegrar orku á heimsvísu til að stemma stigu við þeim. Þetta atriði vegur mjög þungt þegar afdrif íslenskrar náttúru og líffræðilegs fjölbreytileika á sjó og landi eru annars vegar. Því miður stilla sumir þeirra, sem láta sig hagsmuni náttúrunnar varða, grænni orkuframleiðslu upp sem einhvers konar óvini málstaðar síns. Þetta er e.t.v. til marks um hversu mjög hefur aukið á samfélagslega skautun að undanförnu og um aukna upplýsingaóreiðu á ýmsum sviðum.[3]Reyndin er sú, að aukin framleiðsla endurnýjanlegrar orku er ómissandi þáttur í því að varðveita náttúruna; þar með talið, og reyndar sér í lagi, íslenska náttúru. Þegar valið er úr virkjunarhugmyndum eða tæknilegri útfærslu á grænni orkuöflun er mikilvægt að vanda til verka og fullkomlega eðlilegt að ólík sjónarmið komi fram. Hins vegar væri óeðlilegt ef þeir sem létu sér afdrif íslenskrar náttúru fyrir brjósti brenna legðust alfarið gegn aukinni framleiðslu endurnýjanlegrar orku á Íslandi. Slík sjónarmið eru ósamrýmanleg. Hvort sem við nálgumst náttúruvernd út frá hagsmunum einstakra dýrategunda, afdrifum ákveðinna svæða, afmörkuðum vistkerfum eða á hnattrænum skala, þá erum við í sama liðinu. Hagsmunum íslenskrar náttúru er best borgið með því að samherjar hennar snúi bökum saman og forgangsraði viðbrögðum sínum eftir alvarleika þeirra ógna sem að henni steðja. Höfundur er eðlisfræðingur. [1] https://www.arcticbiodiversity.is/index.php/the-report/report-for-policy-makers/key-findings [2] https://www.ipcc.ch/report/ar6/syr/downloads/report/IPCC_AR6_SYR_SPM.pdf [3] https://fjolmidlanefnd.is/wp-content/uploads/2023/02/Upply%CC%81singao%CC%81reida-og-skautun-i%CC%81-i%CC%81slensku-samfe%CC%81lagi.pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Mest lesið Eineltið byrjar kannski við eldhúsborðið! Birta Róbertsdóttir Skoðun Þegar veikindaleyfi verður að fríi Gunnar Ármannsson Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Hvaða skilaboð erum við að senda framtíðarkennurum? Eyrún Ósk Hjartardóttir Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun Draumsýn menntamála Álfhildur Leifsdóttir ,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Geimvera lendir á Íslandi Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Tvískinnungur ættjarðarástar Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Íslenska Z-kynslóðin hefur hægt um sig Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég hata þessa manneskju út af lífinu! Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin kjósa – en hver hefur eftirlit með forsetanum? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Icelandair undir verndarvæng ríkisins Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Útsæði á diskinn minn! Guðmundur Finnbogason skrifar Skoðun Heimili á hjólum er líka heimili Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannaréttur er heilagur réttur Þórarinn Eyfjörð skrifar Sjá meira
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Skoðun Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir skrifar
Er norræna módelið refsilaust fyrir seljendur vændis á Íslandi? Ari Logn,Renata Arnórsdóttir,Brynhildur Ragnarsdóttir,Guðný Þorsteinsdóttir Skoðun