Handbolti

Anton og Jónas dæma hjá Orra í Meistara­deild Evrópu

Sindri Sverrisson skrifar
Anton Gylfi Pálsson er þaulvanur því að dæma á stóra sviðinu og hjá stærstu stjörnum handboltans.
Anton Gylfi Pálsson er þaulvanur því að dæma á stóra sviðinu og hjá stærstu stjörnum handboltans. Getty/Jürgen Fromme

Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson sjá um að dæma mikilvægan slag í Meistaradeild Evrópu í handbolta í næstu viku.

Um er að ræða fyrri leik Sporting Lissabon og Álaborgar í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar, næsta miðvikudagskvöld.

Orri Freyr Þorkelsson er einn af lykilmönnum Sporting en liðið sló út pólska liðið Wisla Plock í síðustu umferð með samtals þriggja marka mun, 60-57.

Álaborgarliðið fór hins vegar beint í 8-liða úrslitin með því að lenda í 2. sæti A-riðils í riðlakeppninni, og slapp við umspilið.

Búast má við mikilli stemningu í hinni 3.000 manna Pavilhão João Rocha höll í Lissabon en Sporting er nú annað árið í röð í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar sem er besti árangur í sögu félagsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×